Fara í efni

Fjölskylduráð

252. fundur 17. nóvember 2026 kl. 08:30 - 10:30 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Rebekka Ásgeirsdóttir formaður
  • Elísabet Anna Helgadóttir varaformaður
  • Ágúst Sigurður Óskarsson aðalmaður
  • Halldór Jón Gíslason aðalmaður
  • Signe Ann-Charlotte Fernholm áheyrnarfulltrúi
  • Guðni Már Kjartansson aðalmaður
Starfsmenn
  • Stefán Jón Sigurgeirsson verkefnastjóri á velferðarsviði
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
  • Tinna Ósk Óskarsdóttir félagsmálastjóri
  • Nele Marie Beitelstein fjölmenningarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslufulltrúi
Dagskrá
Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir, leikskólastjóri Grænuvalla, Helga Jónsdóttir, aðstoðarleikskólstjóri Grænuvalla og Heiðar Hrafn Halldórsson, fulltrúi foreldra, sátu fundinn undir lið 1.
Hrund Ásgeirsdóttir, skólastjóri Öxarfjarðarskóla, Hildur leikskólastjóri Lundakots í Öxarfjarðarskóla, Silja Rún Stefánsdóttir, fulltúi foreldra sátu fundinn undir lið 1.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 2 og 7-10.
Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 3-6.
Sigurður Valdimar Olgeirsson, framkvæmdastjóri Völsungs, sat fundinn undir lið 7.
Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir lið 9.

1.Starfsreglur um stoðþjónustu leikskóla í Norðurþingi 2026

Málsnúmer 202610173Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggja drög að starfsreglum um stoðþjónustu leikskóla í Norðurþingi.
Fjölskylduráð felur fræðslufulltrúa að uppfæra reglurnar í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir ráðið að nýju.

2.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202610164Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur trúnaðarmál.
Fært í trúnaðarmálabók.

3.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202610172Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð. Sögunefnd Völsungs sækir um 100.000 kr. til að ljúka ritun og stafrænni miðlun sögu félagsins fyrir tímabilið 2000-2027. Stefnt er að því að birta söguna í heild sinni á 100 ára afmæli félagsins þann 12. apríl 2027.
Fjölskylduráð samþykkir að veita Sögunefnd Völsungs styrk að upphæð 100.000 kr úr lista- og menningarsjóði.
Ágúst vék af fundi undir þessum lið.

4.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202610174Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð. Hildur Óladóttir sækir um 100.000 kr. til að halda útgáfuhóf vegna bókar sinnar Hjartasteins í gistiheimilinu Melum á Kópaskeri í nóvember 2026. Viðburðurinn verður opinn öllum og boðið verður upp á upplestur, áritun bókarinnar, tónlist og léttar veitingar.
Fjölskylduráð samþykkir að veita Hildi Óladóttir styrk að upphæð 100.000 kr úr lista- og menningarsjóði.

5.Brennur og flugeldasýningar í Norðurþingi 2026-2027

Málsnúmer 202610105Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggja til kynningar dagsetningar fyrir flugeldasýningar og brennur á áramótum og þrettánda 2026/2027.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi dagsetningar fyrir brennur og flugeldasýningar í sveitarfélaginu. Ákveðið hefur verið að leggja af brennu á þrettándanum á Húsavík en haldið verður áfram með flugeldasýningu.

6.Beiðni Þjóðleikhússins um samstarf - Laxness eins og hann leggur sig

Málsnúmer 202610171Vakta málsnúmer

Þjóðleikhúsið býður nemendum á unglingastigi grunnskóla á sýninguna "Laxness eins og hann leggur sig" dagana 2. og 3. mars 2027, þeim að kostnaðarlausu. Óskað er eftir aðstoð Norðurþings við að útvega sýningarrými og greiða gistikostnað fyrir fjögurra manna hóp eina nótt. Verið er að kanna sýningarstaði og akstur nemenda í samstarfi við Þingeyjarsveit.
Fjölskylduráð samþykkir samstarf við Þjóðleikhúsið um uppsetningu á "Laxness eins og hann leggur sig" fyrir nemendur á unglingastigi í grunnskóla. Ráðið felur fjölmenningarfulltrúa að vinna málið áfram.

7.Ársreikningur og ársskýrsla Íþróttafélagsins Völsungs fyrir 2025

Málsnúmer 202611039Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur til kynningar ársreikningur og ársskýrsla Íþróttafélagsins Völsungs vegna 2025.
Lagt fram til kynningar.

8.Ungmennaráð Norðurþings 2026-2027

Málsnúmer 202611019Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggja tilnefningar í Ungmennaráð Norðurþings 2026-27. Tilnefningarnar eru:

Aðalmenn:
Margrét Sif Jóhannsdóttir - FSH
Erla Þyri Brynjarsdóttir - FSH
Benedikt Gunnarsson - Borgarhólsskóli
Sóley Marie Spandau - Öxarfjarðarskóli
Katla María Guðnadóttir - Fulltrúi af vinnumarkaði

Varamenn:
Tinna Ásdísardóttir - FSH
Hildur Edda Björgvinsdóttir - Borgarhólsskóli
Höskuldur Breki Steinþórsson - Öxarfjarðarskóli
Herdís Mist Kristinsdóttir - Fulltrúi af vinnumarkaði
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að skipun í ungmennaráð og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.

9.Gjaldskrár Norðurþings 2027

Málsnúmer 202610013Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur gjaldskrá heimaþjónustu 2027 til afgreiðslu.
Fjölskylduráð vísar gjaldskrá heimaþjónustu 2027 til samþykktar í byggðarráði.

10.Fjárhagsáætlun Norðurþings 2027-2031

Málsnúmer 202606045Vakta málsnúmer

Fyrir fjölskylduráði liggur fyrir áætlun málasviðs 06 Æskulýðs og íþróttamál til kynningar og umræðu.
Rebekka, Elísabet, Guðni og Ann-Charlotte leggja til eftirfarandi tillögu. Undirrituð leggja til að onunartími sundlaugar Húsavíkur verði lengdur til kl 21:00 mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga og til 18:30 á föstudögum. Önnur skerðing sem gerð var á opnunartíma sundlaugarinnar á núlíðandi ári verði endurskoðuð í fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2028.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

Fulltrúi M-Lista Samfélagsins samþykkir tillögu um rýmri opnunartíma Sundlaugarinnar á Húsavík. Mikil óánægja var meðal íbúa og ferðafólks með skertan opnunartíma á árinu 2026 sem var ákveðinn af meirihluta sveitarstjórnar.
Þessi breyting þjónar íbúum og ferðafólki og verður til að auka aðsókn samhliða nýju þjónustuframboði í sundlauginni (sauna og infra rauður klefi).
Ágúst Sigurður Óskarsson, M-Lista Samfélagsins.

Fundi slitið - kl. 10:30.