Beiðni Þjóðleikhússins um samstarf - Laxness eins og hann leggur sig
Málsnúmer 202610171
Vakta málsnúmerFjölskylduráð - 252. fundur - 17.11.2026
Þjóðleikhúsið býður nemendum á unglingastigi grunnskóla á sýninguna "Laxness eins og hann leggur sig" dagana 2. og 3. mars 2027, þeim að kostnaðarlausu. Óskað er eftir aðstoð Norðurþings við að útvega sýningarrými og greiða gistikostnað fyrir fjögurra manna hóp eina nótt. Verið er að kanna sýningarstaði og akstur nemenda í samstarfi við Þingeyjarsveit.
Fjölskylduráð samþykkir samstarf við Þjóðleikhúsið um uppsetningu á "Laxness eins og hann leggur sig" fyrir nemendur á unglingastigi í grunnskóla. Ráðið felur fjölmenningarfulltrúa að vinna málið áfram.