Fara í efni

Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026

Málsnúmer 202610174

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 252. fundur - 17.11.2026

Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð. Hildur Óladóttir sækir um 100.000 kr. til að halda útgáfuhóf vegna bókar sinnar Hjartasteins í gistiheimilinu Melum á Kópaskeri í nóvember 2026. Viðburðurinn verður opinn öllum og boðið verður upp á upplestur, áritun bókarinnar, tónlist og léttar veitingar.
Fjölskylduráð samþykkir að veita Hildi Óladóttir styrk að upphæð 100.000 kr úr lista- og menningarsjóði.