Ósk um umsögn um breytingu á gildu rekstrarleyfi frá Donda ehf. vegna Húsavíkur Öl
Málsnúmer 202606018
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 239. fundur - 23.06.2026
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar Norðurþings um breytingu á rekstrarleyfi til handa Donda ehf vegna Húsavík Öl. Breyting felst í nýjum 84 m² veitingasal sunnan við fyrri aðstöðu auk fyrirhugaðrar stækkunar á útisvæði. Hámarksgestafjöldi í breyttri aðstöðu væri 100 manns.
Þorsteinn vék af fundi undir þessum lið.