Beiðni um framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara á Raufarhöfn 2026
Málsnúmer 202605049
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 239. fundur - 23.06.2026
Tengir ehf. sækir hér með um framkvæmdarleyfi vegna lagningar ljósleiðara í þéttbýli Raufarhafnar árið 2026. Um er að ræða lagningu ljósleiðara til heimila, fyrirtækja og stofnanna, auk lagningar varaleiðar ljósleiðara í fjarskiptamastur Öryggisfjarskipta vestan þéttbýliskjarnans og lagningar stofnlagnar til að ljúka tvítengingu ljósleiðara til Raufarhafnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að veita Tengi ehf. framkvæmdaleyfi vegna lagningar ljósleiðara í þéttbýli Raufarhafnar.