Fara í efni

Ósk um leyfi fyrir breytingu á þaki og klæðningu á bílskúr við Brávelli 3, Húsavík

Málsnúmer 202606037

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 239. fundur - 23.06.2026

Ólafur Ármann Sigurðsson óskar leyfis til að setja risþak á bílskúr sinn við Brávelli 3 á Húsavík. Fyrir liggur teikning unnin af Erni Sigurðssyni tæknifræðingi. Ennfremur liggur fyrir undirritað samþykki nágranna fyrir útlitsbreytingunni. Fyrir liggur umsögn frá slökkviliði Norðurþings sem ekki leggst gegn því að leyfi fyrir framkvæmdinni verði veitt, enda verði fyrirliggjandi eldvörn bílskúrsins ekki skert við framkvæmdirnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur grenndarkynningu fullnægjandi og heimilar byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir framkvæmdinni þegar fullnægjandi gögn þar að lútandi hafa borist.
Fylgiskjöl: