Fara í efni

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við ESB

Málsnúmer 202606005

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 523. fundur - 09.07.2026

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við ESB fer fram 29. ágúst nk. og hefst atkvæða greiðsla utan kjörfundar þann 27. júlí nk.

Síðastliðin ár hefur kjósendum verið gert mögulegt að greiða atkvæði utan kjörfundar hjá sérstökum kjörstjórum, skipuðum af sýslumanni á skrifstofum Norðurþings á Kópaskeri og Raufarhöfn. Til svo verði þarf sveitarstjórn að óska eftir því við sýslumann til samræmis 69. gr. kosningalaga nr. 113/2021.

Fyrir byggðarráði liggur því að óska eftir við sýslumann að skipa kjörstjóra á skrifstofum sveitarfélagsins á Kópaskeri og Raufarhöfn til þess að sinna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar.
Byggðarráð samþykkir, í sumarleyfi sveitarstjórnar, að óska eftir við sýslumann að skipa kjörstjóra á skrifstofum sveitarfélagsins á Kópaskeri og Raufarhöfn. Tilnefningar ráðsins eru Einar Ingi Einarsson og Birna Björnsdóttir, starfsmenn sveitarfélagsins á staðnum.

Engin breyting er á kjörstöðum frá fyrri árum og verða þeir áfram fjórir með fimm kjördeildum:
Húsavík, Borgarhólsskóli - kjördeild 1 og 2.
Kelduhverfi, Skúlagarður - kjördeild 3.
Kópasker, skólahús - kjördeild 4.
Raufarhöfn, ráðhús - kjördeild 5.