Fara í efni

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum m.a. um hollustuhætti og mengunarvarnir

Málsnúmer 202602017

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 233. fundur - 10.02.2026

Fyrir ráðinu liggur erindi frá SSNE þar sem vakin er athygli á frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum m.a. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Frumvarpið er komið til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda.
Skipulags- og framkvæmdaráð mótmælir þeim áformum sem koma fram í framlögðu frumvarpi um að flytja allt eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga til Umhverfis- og orkustofnunar og að eftirlit með matvælum flytjist til Matvælastofnunar. Ráðið vísar erindinu til byggðarráðs.