Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdaráð

233. fundur 10. febrúar 2026 kl. 13:00 - 16:00 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Soffía Gísladóttir formaður
  • Rebekka Ásgeirsdóttir varaformaður
  • Eiður Pétursson aðalmaður
  • Þorsteinn Snævar Benediktsson aðalmaður
  • Birkir Freyr Stefánsson áheyrnarfulltrúi
  • Aldey Unnar Traustadóttir varamaður
Starfsmenn
  • Elvar Árni Lund sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
  • Gaukur Hjartarson skipul.- og byggingarfulltrúi
  • Ketill Gauti Árnason verkefnastjóri á framkvæmdasviði
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslu- og þjónustufulltrúi
Dagskrá
Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri, sat fundinn undir liðum 1-3.

1.Framkvæmda- og fjárfestingaáætlun 2026 og 2027-2029

Málsnúmer 202510018Vakta málsnúmer

Til umfjöllunar framkvæmdir ársins og fjárfestingaáætlun.
Skipulags- og framkvæmdaráðs leggur til að vinnu við Ketilsbraut 7-9 verði forgangsraðað á framkvæmdaáætlun. Gatnaframkvæmdum á Ketilsbraut verði frestað fram á haust. Ráðið felur sviðstjóra skipulags- og umhverfissviðs að taka saman kostnaðartölur og leggja fyrir ráðið að nýju.

2.Iðavellir 8 - húsnæðisaðstæður

Málsnúmer 202509024Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráð liggur niðurstaða Vinnuhóps vegna húsnæðisaðstæðna á Iðavöllum 8.
Fyrir ráðinu liggur að taka afstöðu til niðurstöðu hópsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að farin verði leið 1 í tillögum starfshóps.

Húsnæðisaðstæður að Iðavöllum 8 verði bættar og starfsemi Grænuvalla flutt aftur inn í húsið að endurbótum loknum. Áætlaður kostnaður er 10 m.kr.

3.Sundlaugin í Lundi - Hönnun og framkvæmdir

Málsnúmer 202602028Vakta málsnúmer

Til umræðu staða á hönnun og áætlun vegna framkvæmda við uppbyggingu sundlaugar í Lundi samkvæmt framkvæmdaáætlun 2026.
Lagt fram til kynningar.

4.Fjallskilasjóður Öxarfjarðar

Málsnúmer 202602019Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur fundargerð fjallskilasjóðs öxfirðinga frá janúar 2026 ásamt erindi vegna vinnu við aðhald við sæluhús á Öxarfjarðarheiði.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að setja 500.000 kr í aðhald við Sæluhús á Öxarfjarðarheiði.

5.Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum m.a. um hollustuhætti og mengunarvarnir

Málsnúmer 202602017Vakta málsnúmer

Fyrir ráðinu liggur erindi frá SSNE þar sem vakin er athygli á frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum m.a. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Frumvarpið er komið til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda.
Skipulags- og framkvæmdaráð mótmælir þeim áformum sem koma fram í framlögðu frumvarpi um að flytja allt eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga til Umhverfis- og orkustofnunar og að eftirlit með matvælum flytjist til Matvælastofnunar. Ráðið vísar erindinu til byggðarráðs.

6.Endurskoðun samþykktar um sorphirðu

Málsnúmer 202505027Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur tillaga að endurskoðaðri samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Norðurþingi.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitastjórn að tillaga að endurskoðaðri samþykkt um meðhöndlun úrgangs verði samþykkt.

7.Lóðarhafar Höfða 3 og Höfða 5c óska eftir lóðarstækkun

Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer

Lóðarhafar að Höfða 3 og Höfða 5c óska eftir lóðarstækkun um 3 m til austurs, inn á lóð áhaldahúss Norðurþings. Meðfylgjandi erindi er rissmynd af óskaðri lóðarstækkun. Lóðarhafar telja mikilvægt að hafa lóðarréttindi út frá sínum húsum, m.a. til að sinna viðhaldi klæðinga utanhúss og minnka líkur á skemmdum á þeim. Sviðsstjóri gerði grein fyrir sjónarmiðum stjórnenda þjónustustöðvar þar sem lagst er gegn umbeðinni stækkun lóðarinnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur sér ekki fært að gefa eftir 3. m breytt svæði af lóð þjónustustöðvar enda myndi það skerða umtalsvert geymslu- og athafnasvæði lóðarinnar. Á hinn bóginn tekur ráðið undir sjónarmið umsækjenda varðandi mikilvægi þess að húseigendur hafi aðgang innan lóðar að eignum sínum og leggur til við sveitarstjórn að lóðarhöfum að Höfða 3 og Höfða 5c verði boðin lóðarstækkun sem fælist í að lóðarmörk yrðu 1,5 m austan við verkstæðisskemmu GG. Norðurþing býður umsækjendum einnig tímabundin afnot af nærsvæðum vegna endurnýjunar eða viðhald klæðninga. Skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að útbúa hnitsettar lóðarmyndir.

8.Ósk um framlengingu lóðarúthlutunar við Búðarfjöru 3

Málsnúmer 202602004Vakta málsnúmer

Íslandsþari óskar eftir framlengingu lóðarúthlutunar að Búðarfjöru á Húsavík. Íslandsþari fékk lóðinni að Búðarfjöru 1 úthlutað af sveitarstjórn Norðurþings á fundi þann 5. desember 2024. Sú lóðarúthlutun er nú útrunnin skv. vinnureglum um lóðarúthlutanir. Með deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í sveitarstjórn 3. apríl 2025 var lóðarfyrirkomulagi á svæðinu breytt og óskar Íslandsþari nú eftir lóðinni að Búðarfjöru 3. Íslandsþari vísar í fyrri kynningar á fyrirhugaðri starfsemi.
Meirihluti skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkir með atkvæðum Eiðs, Rebekku, Soffíu og Þorsteins að leggja til við sveitarstjórn að Íslandsþara verði úthlutað lóðinni að Búðarfjöru 3.

Aldey fulltrúi V-lista greiðir atkvæði gegn afgreiðslunni og leggur fram eftirfarandi bókun:
Undirritaðri hugnast ekki sú starfsemi sem fyrirhuguð er skv. framlögðum byggingaráformum og leggst því gegn úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.

9.Framkvæmdir við Hafnarstétt 17 - aðkoma Norðurþings

Málsnúmer 202602005Vakta málsnúmer

Fyrir liggur tölvupóstur frá Friðriki Fraser þar sem fram koma upplýsingar um væntingar Verbúða ehf varðandi framlag Norðurþings til fyrirhugaðra framkvæmda við að breyta efri hæð Hafnarstéttar 17 í íbúðir.
Skipulags- og framkvæmdaráð tekur eftirfarandi afstöðu til tölusettra liða í tölvupósti Friðriks.
1. Ráðið felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gera tillögu að nýju lóðarblaði Hafnarstéttar 17 svo koma megi fyrirhugaðri sorp- og hjólageymslu fyrir innan lóðar.
2. Ráðið telur ákvæði kaupsamnings frá 2022 um verbúðarhús skýr með þátttöku sveitarfélagsins í frágangi þakyfirborðs hússins. Í ljósi þess að ekki var gert ráð fyrir yfirborðsfrágangi þaksins í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs telur ráðið sér ekki fært að ganga frá endanlegu yfirborði þaksins fyrr en 2027.
3. Ráðið mun standa við loforð í kaupsamningi um afhendingu malarefnis í efnisnámu til uppfyllingar austan húss.
4. Ráðið sér sér ekki fært að lofa neinu um frágang göngustígs/skábrautar austan lóðarinnar en leggur áherslu á að framkvæmdaaðili gangi snyrtilega frá svæðinu í lok framkvæmda.

10.Hafnarstétt 17 - Tillaga að breyttum lóðarmörkum

Málsnúmer 202602026Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti tillögu að breyttum lóðarmörkum Hafnarstéttar 17 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar sorp- og hjólageymslu utan núverandi lóðar. Lóðartillaga felur í sér 691,6 m² lóð í stað 637 m² lóðar skv. gildandi lóðarleigusamningi.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til að lóðarhöfum að Hafnarstétt 17 verði boðinn lóðarleigusamningur á grundvelli fyrirliggjandi lóðarblaðs þegar og ef til framkvæmda kemur innan eins árs.

Fundi slitið - kl. 16:00.