Fara í efni

Framkvæmdir við Hafnarstétt 17 - aðkoma Norðurþings

Málsnúmer 202602005

Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð - 233. fundur - 10.02.2026

Fyrir liggur tölvupóstur frá Friðriki Fraser þar sem fram koma upplýsingar um væntingar Verbúða ehf varðandi framlag Norðurþings til fyrirhugaðra framkvæmda við að breyta efri hæð Hafnarstéttar 17 í íbúðir.
Skipulags- og framkvæmdaráð tekur eftirfarandi afstöðu til tölusettra liða í tölvupósti Friðriks.
1. Ráðið felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gera tillögu að nýju lóðarblaði Hafnarstéttar 17 svo koma megi fyrirhugaðri sorp- og hjólageymslu fyrir innan lóðar.
2. Ráðið telur ákvæði kaupsamnings frá 2022 um verbúðarhús skýr með þátttöku sveitarfélagsins í frágangi þakyfirborðs hússins. Í ljósi þess að ekki var gert ráð fyrir yfirborðsfrágangi þaksins í fjárhagsáætlun yfirstandandi árs telur ráðið sér ekki fært að ganga frá endanlegu yfirborði þaksins fyrr en 2027.
3. Ráðið mun standa við loforð í kaupsamningi um afhendingu malarefnis í efnisnámu til uppfyllingar austan húss.
4. Ráðið sér sér ekki fært að lofa neinu um frágang göngustígs/skábrautar austan lóðarinnar en leggur áherslu á að framkvæmdaaðili gangi snyrtilega frá svæðinu í lok framkvæmda.