Hafnarstétt 17 - Tillaga að breyttum lóðarmörkum
Málsnúmer 202602026
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 233. fundur - 10.02.2026
Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti tillögu að breyttum lóðarmörkum Hafnarstéttar 17 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar sorp- og hjólageymslu utan núverandi lóðar. Lóðartillaga felur í sér 691,6 m² lóð í stað 637 m² lóðar skv. gildandi lóðarleigusamningi.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til að lóðarhöfum að Hafnarstétt 17 verði boðinn lóðarleigusamningur á grundvelli fyrirliggjandi lóðarblaðs þegar og ef til framkvæmda kemur innan eins árs.
Sveitarstjórn Norðurþings - 161. fundur - 19.02.2026
Á 233. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað:
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til að lóðarhöfum að Hafnarstétt 17 verði boðinn lóðarleigusamningur á grundvelli fyrirliggjandi lóðarblaðs þegar og ef til framkvæmda kemur innan eins árs.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til að lóðarhöfum að Hafnarstétt 17 verði boðinn lóðarleigusamningur á grundvelli fyrirliggjandi lóðarblaðs þegar og ef til framkvæmda kemur innan eins árs.
Til máls tóku: Eiður, Áki og Helena.
Tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkt með atkvæðum Benónýs, Helenu, Kristins, Aldeyjar, Ingibjargar, Eiðs, Bylgju og Hjálmars.
Áki situr hjá.