Sveitarstjórn Norðurþings
1.Viljayfirlýsing um ál endurvinnslu á Bakka
Málsnúmer 202601020Vakta málsnúmer
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og vísar henni til afgreiðslu í sveitarstjórn.
2.Kynning á stöðu verkefnis E- Valor ehf á Bakka
Málsnúmer 202503103Vakta málsnúmer
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og vísar henni til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Fyrirliggjandi viljayfirlýsing samþykkt samhljóða.
3.Ályktun fundar í Mótvindi á Melrakkasléttu
Málsnúmer 202602056Vakta málsnúmer
Félagið krefst þess að bókunin verði tekin til baka og áformin um orkuverið
felld niður. Einnig krefst félagið þess að sveitarstjórn standi fyrir íbúafundum á svæðinu um þetta mál, fyrir lok febrúar 2026.
Lagt fram.
4.Fjármögnun Lánasjóður sveitarfélaga
Málsnúmer 202602008Vakta málsnúmer
Byggðarráð Norðurþings samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 400.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Byggðarráð hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samþykkir bygggðarráð að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið m.a. til byggingar frístundarhúsnæðis við Borgarhólsskóla, hafnarframkvæmda og byggingar á sundlaug í Lundi í Öxarfirði. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Bergþóri Bjarnasyni, fjármálastjóra, kt.110870-5239, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Norðurþings, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
Byggðarráð vísar málinu til staðfestingar í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
5.Viðauki vegna framkvæmda við húsnæði 2026
Málsnúmer 202602012Vakta málsnúmer
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka að upphæð 18.657.665 kr og vísar honum til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
6.Viðauki vegna félagsstarfs aldraðra á Kópaskeri og Raufarhöfn
Málsnúmer 202602025Vakta málsnúmer
Byggðarráð vísar fyrirliggjandi viðauka að upphæð 5,1 m.kr til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
7.Hverfisráð Norðurþings 2023 - 2025
Málsnúmer 202309134Vakta málsnúmer
Hverfisráð Öxarfjarðar
Formaður: Ann-Charlotte Fernholm
Aðalmaður: Stefán Haukur Grímsson
Aðalmaður: Þorbjörg Dóra Gunnarsdóttir
Varamaður: Silja Rún Stefánsdóttir
Hverfisráð Kelduhverfis
Formaður: Salbjörg Matthíasdóttir
Aðalmaður: Aðalsteinn Örn Snæþórsson
Aðalmaður: Guðmundur Baldvin Guðmundsson
Varamaður: Jóhannes Guðmundsson
Varamaður: Jónas Þór Viðarsson
Hverfisráð Raufarhafnar
Formaður: Margrét Rögnvaldsdóttir
Aðalmaður: Einar Sigurðsson
Aðalmaður: Reynir Þorsteinsson
Varamaður: Bergdís Jóhannsdóttir
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og vísar henni til staðfestingar í sveitarstjórn.
8.Reglur um fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 202209011Vakta málsnúmer
9.Viðmiðunarreglur um skammtímaleyfi í skólum Norðurþings
Málsnúmer 202601062Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð vísar uppfærðum reglum til samþykktar í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
10.Afreks- og viðurkenningarsjóður 2025
Málsnúmer 202601023Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur afreks- og viðurkenningarsjóðs Norðurþings og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.
Hjálmar leggur fram eftirfarandi tillögu: Undirritaður leggur til að liður 5 í reglum sjóðsins falli út að sinni.
Tillaga Hjálmars samþykkt með atkvæðum Helenu, Kristins, Aldeyjar, Ingibjargar, Áka, Eiðs, Hjálmars og Bylgju. Benóný situr hjá.
Tillaga fjölskylduráðs samþykkt samhljóða.
11.Ungmennaráð 2025-2026
Málsnúmer 202602020Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja tilnefningar í Ungmennaráð Norðurþings 2025-26.
Aðalmenn:
Katla María Guðnadóttir - FSH
Guðrún Halla Jónsdóttir - FSH
Heiðdís Dalrós Sigurðardóttir - Borgarhólsskóli
Jón Emil Christophsson - Öxarfjarðarskóli
Herdís Mist Kristinsdóttir - Fulltrúi af vinnumarkaði
Varamenn:
Hörður Bjarni Bergþórsson - FSH
Benedikt Gunnarsson - Borgarhólsskóli
Höskuldur Breki Steinþórsson - Öxarfjarðarskóli
Tryggvi Grani Jóhannsson - Fulltrúi af vinnumarkaði
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að skipun ungmennaráðs og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
Tillagan samþykkt samhljóða.
12.Hafnarstétt 17 - Tillaga að breyttum lóðarmörkum
Málsnúmer 202602026Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til að lóðarhöfum að Hafnarstétt 17 verði boðinn lóðarleigusamningur á grundvelli fyrirliggjandi lóðarblaðs þegar og ef til framkvæmda kemur innan eins árs.
Tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkt með atkvæðum Benónýs, Helenu, Kristins, Aldeyjar, Ingibjargar, Eiðs, Bylgju og Hjálmars.
Áki situr hjá.
13.Endurskoðun samþykktar um gatnagerðargjöld o.fl.gjöld.
Málsnúmer 202502039Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að breytt samþykkt um gatnagerðarjald, stofngjald fráveitu, byggingarleyfisgjald, byggingarheimildargjald, gjöld vegna skipulagsvinnu og afgreiðslu- og þjónustugjöld skv. framlagðri tillögu verði samþykkt.
Tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkt samhljóða.
14.Endurskoðun samþykktar um sorphirðu
Málsnúmer 202505027Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitastjórn að tillaga að endurskoðaðri samþykkt um meðhöndlun úrgangs verði samþykkt.
15.Ósk um framlengingu lóðarúthlutunar við Búðarfjöru 3
Málsnúmer 202602004Vakta málsnúmer
Meirihluti skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkir með atkvæðum Eiðs, Rebekku, Soffíu og Þorsteins að leggja til við sveitarstjórn að Íslandsþara verði úthlutað lóðinni að Búðarfjöru 3. Aldey fulltrúi V-lista greiðir atkvæði gegn afgreiðslunni og leggur fram eftirfarandi bókun: Undirritaðri hugnast ekki sú starfsemi sem fyrirhuguð er skv. framlögðum byggingaráformum og leggst því gegn úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.
Tillaga meirihluta skipulags- og framkvæmdaráðs er samþykkt með atkvæðum Benónýs, Helenu, Kristins, Eiðs, Bylgju og Hjálmars.
Á móti eru Aldey, Ingibjörg og Áki.
16.Lóðarhafar Höfða 3 og Höfða 5c óska eftir lóðarstækkun
Málsnúmer 202602002Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð telur sér ekki fært að gefa eftir 3. m breytt svæði af lóð þjónustustöðvar enda myndi það skerða umtalsvert geymslu- og athafnasvæði lóðarinnar. Á hinn bóginn tekur ráðið undir sjónarmið umsækjenda varðandi mikilvægi þess að húseigendur hafi aðgang innan lóðar að eignum sínum og leggur til við sveitarstjórn að lóðarhöfum að Höfða 3 og Höfða 5c verði boðin lóðarstækkun sem fælist í að lóðarmörk yrðu 1,5 m austan við verkstæðisskemmu GG. Norðurþing býður umsækjendum einnig tímabundin afnot af nærsvæðum vegna endurnýjunar eða viðhald klæðninga. Skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að útbúa hnitsettar lóðarmyndir.
Áki sat hjá.
Helena vék undir þessum lið.
17.Loftlagsstefna Norðurlands eystra
Málsnúmer 202601048Vakta málsnúmer
Skipulags-og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við drög að Loftlagsstefnu Norðurlands eystra og vísar þeim til umfjöllunar í sveitarstjórn.
Lagt fram.
18.Breyting deiliskipulags Stórhóll- Hjarðarholt
Málsnúmer 202311126Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Stórhól - Hjarðarholt verði samþykkt eins og hún var lögð fram á fundinum. Skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa gildistöku deiliskipulagsins að fengnu samþykki Skipulagsstofnunar.
Samþykkt samhljóða.
Helena vék undir þessum lið.
19.Fundaáætlun sveitarstjórnar Norðurþings
Málsnúmer 202401031Vakta málsnúmer
20.Fjölskylduráð - 234
Málsnúmer 2601002FVakta málsnúmer
21.Fjölskylduráð - 235
Málsnúmer 2601007FVakta málsnúmer
Til máls tók undir lið 9 "Erindi frá nemendum í 7.bekk": Aldey.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
22.Skipulags- og framkvæmdaráð - 232
Málsnúmer 2601003FVakta málsnúmer
23.Skipulags- og framkvæmdaráð - 233
Málsnúmer 2602002FVakta málsnúmer
24.Byggðarráð Norðurþings - 514
Málsnúmer 2601005FVakta málsnúmer
25.Byggðarráð Norðurþings - 515
Málsnúmer 2602001FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
26.Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 40
Málsnúmer 2601006FVakta málsnúmer
27.Orkuveita Húsavíkur ohf - 273
Málsnúmer 2602004FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 15:04.
Fyrirliggjandi viljayfirlýsing samþykkt samhljóða.