Fara í efni

Ályktun fundar í Mótvindi á Melrakkasléttu

Málsnúmer 202602056

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Norðurþings - 161. fundur - 19.02.2026

Fyrir sveitarstjórn liggur erindi frá Mótvindi á Melrakkasléttu þar sem félagið mótmælir harðlega þeirri ákvörðun sveitarstjórnar Norðurþings frá 22. janúar 2026 að óska eftir því við verkefnisstjórn rammaáætlunar að færa orkuver á Hólaheiði úr biðflokki í nýtingarflokk.
Félagið krefst þess að bókunin verði tekin til baka og áformin um orkuverið
felld niður. Einnig krefst félagið þess að sveitarstjórn standi fyrir íbúafundum á svæðinu um þetta mál, fyrir lok febrúar 2026.
Til máls tóku: Hjálmar, Aldey, Eiður, Benóný, Ingibjörg, Áki, Kristinn og Helena.

Lagt fram.