Fara í efni

Afreks- og viðurkenningarsjóður 2025

Málsnúmer 202601023

Vakta málsnúmer

Fjölskylduráð - 233. fundur - 13.01.2026

Til umfjöllunar er fyrirkomulag og undirbúningur á úthlutun úr afreks- og viðurkenningarsjóði 2025.
Fjölskylduráð heldur áfram umfjöllun sinni á næsta fundi ráðsins.

Fjölskylduráð - 234. fundur - 27.01.2026

Til umfjöllunar er fyrirhuguð úthlutun úr Afreks- og viðurkenningarsjóði vegna ársins 2025.
Fjölskylduráð felur verkefnastjóra velferðarsviðs að fullvinna drögin og leggja þau fyrir á næsta fundi ráðsins.

Fjölskylduráð - 235. fundur - 10.02.2026

Fyrir fjölskylduráði liggja fyrir uppfærðar reglur um afreks- og viðurkenningarsjóð Norðurþings til samþykktar.
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur afreks- og viðurkenningarsjóðs Norðurþings og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.

Sveitarstjórn Norðurþings - 161. fundur - 19.02.2026

Á 235. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:

Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur afreks- og viðurkenningarsjóðs Norðurþings og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.
Til máls tóku: Kristinn, Hjálmar, Ingibjörg og Helena.

Hjálmar leggur fram eftirfarandi tillögu: Undirritaður leggur til að liður 5 í reglum sjóðsins falli út að sinni.

Tillaga Hjálmars samþykkt með atkvæðum Helenu, Kristins, Aldeyjar, Ingibjargar, Áka, Eiðs, Hjálmars og Bylgju. Benóný situr hjá.

Tillaga fjölskylduráðs samþykkt samhljóða.