Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Grunnskóli Raufarhafnar - starfsemi
Málsnúmer 202510082Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð heldur umfjöllun sinni áfram um starfsemi Gunnskólans á Raufarhöfn.
Í ljósi upplýsinga um væntanlegan fjölda grunnskólabarna á Raufarhöfn skólaárið 2026-2027 leggur fjölskylduráð til að skólahald grunnskólabarna á Raufarhöfn verði fært í Öxarfjarðarskóla.
Sviðstjóra velferðarsviðs er falið að kynna tillöguna fyrir skólaráði Grunnskóla Raufarhafnar og óska umsagnar.
Sviðstjóra velferðarsviðs er falið að kynna tillöguna fyrir skólaráði Grunnskóla Raufarhafnar og óska umsagnar.
2.Viðmiðunarreglur um skammtímaleyfi í skólum Norðurþings
Málsnúmer 202601062Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð heldur umfjöllun sinni áfram á viðmiðunarreglum um skammtímaleyfi í skólum Norðurþings.
Fjölskylduráð vísar uppfærðum reglum til samþykktar í sveitarstjórn.
3.Iðavellir 8 - húsnæðisaðstæður
Málsnúmer 202509024Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja fyrir tillögur starfshóps um endurbætur á Iðavöllum 8.
Fjölskylduráð leggur til við skipulags- og framkvæmdaráð að farið verði leið 1 í tillögum starfshóps.
Bæta húsnæðisaðstæður að Iðavöllum 8 og flytja starfsemi Grænuvalla aftur inn í húsið.
Bæta húsnæðisaðstæður að Iðavöllum 8 og flytja starfsemi Grænuvalla aftur inn í húsið.
4.Viðauki vegna félagsstarfs aldraðra á Kópaskeri og Raufarhöfn
Málsnúmer 202602025Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur viðauki að upphæð 5,1 m.kr vegna félagsstarfs aldraðra á Kópaskeri og Raufarhöfn.
Fjölskylduráð vísar viðaukabeiðni vegna lögbundins félagsstarfs aldraðra austan Tjörness til samþykktar í byggðarráði.
5.Drög að fundaáætlun fjölskylduráðs veturinn 2025 - 2026
Málsnúmer 202508014Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja uppfærð drög að fundardagskrá fjölskylduráðs veturinn 2025-2026.
Lagt fram til kynningar.
6.Könnun á þjónustu Norðurþings við eldri borgara
Málsnúmer 202311102Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur afgreiðsla byggðarráðs frá 514. fundi ráðsins þar sem fyrir lágu upplýsingar um þær þjónustukannanir sem lagðar eru reglulega fyrir hjá sveitarfélaginu ásamt upplýsingum um hvernig þær eru hagnýttar.
Byggðarráð bókaði að það teldi ekki þörf á að setja stefnu um þjónustukannanir að sinni.
Byggðarráð bókaði að það teldi ekki þörf á að setja stefnu um þjónustukannanir að sinni.
Lagt fram til kynningar.
7.Trúnaðarmál
8.Reglur um fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 202209011Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja til kynningar uppfærðar reglur um fjárhagsaðstoð skv. vísitölu neysluverðs í janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
9.Erindi frá nemendum í 7.bekk
Málsnúmer 202602029Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur erindi frá börnum í 7. bekk Borgarhólsskóla vegna útivistartíma barna og aðgangs í sundlaug Húsavíkur á kvöldin.
Fjölskylduráð þakkar nemendum í 7.bekk fyrir erindið og ábendinguna. Samkvæmt upplýsingum sem liggja fyrir ráðinu hafa viðmiðunarreglur verið uppfærðar. Framvegis verður miðað við útivistartíma samkvæmt lögum.
10.Ársreikningur og ársskýrsla Skákfélagsins Goðans 2025
Málsnúmer 202602021Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur til kynningar ársreikningur og ársskýrsla Skákfélagsins Goðans
Lagt fram til kynningar.
11.Afreks- og viðurkenningarsjóður 2025
Málsnúmer 202601023Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja fyrir uppfærðar reglur um afreks- og viðurkenningarsjóð Norðurþings til samþykktar.
Fjölskylduráð samþykkir uppfærðar reglur afreks- og viðurkenningarsjóðs Norðurþings og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn.
12.Ungmennaráð 2025-2026
Málsnúmer 202602020Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggja tilnefningar í Ungmennaráð Norðurþings 2025-26. Tilnefningarnar eru:
Aðalmenn:
Katla María Guðnadóttir - FSH
Guðrún Halla Jónsdóttir - FSH
Heiðdís Dalrós Sigurðardóttir - Borgarhólsskóli
Jón Emil Christophsson - Öxarfjarðarskóli
Herdís Mist Kristinsdóttir - Fulltrúi af vinnumarkaði
Varamenn:
Hörður Bjarni Bergþórsson - FSH
Benedikt Gunnarsson - Borgarhólsskóli
Höskuldur Breki Steinþórsson - Öxarfjarðarskóli
Tryggvi Grani Jóhannsson - Fulltrúi af vinnumarkaði
Aðalmenn:
Katla María Guðnadóttir - FSH
Guðrún Halla Jónsdóttir - FSH
Heiðdís Dalrós Sigurðardóttir - Borgarhólsskóli
Jón Emil Christophsson - Öxarfjarðarskóli
Herdís Mist Kristinsdóttir - Fulltrúi af vinnumarkaði
Varamenn:
Hörður Bjarni Bergþórsson - FSH
Benedikt Gunnarsson - Borgarhólsskóli
Höskuldur Breki Steinþórsson - Öxarfjarðarskóli
Tryggvi Grani Jóhannsson - Fulltrúi af vinnumarkaði
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að skipun ungmennaráðs og vísar til staðfestingar í sveitarstjórn.
13.Samstarf til að efla lýðræðislega þátttöku innflytjenda
Málsnúmer 202510109Vakta málsnúmer
Magnea Marinósdóttir, verkefnastjóri í verkefninu lýðræðisleg þátttaka innflytjenda, óskar eftir styrk vegna ferða- og gistikostnaðar. Vinnustofur verða á Kópaskeri 7.-8.mars og á Húsavík 14.-15.mars.
Fjölskylduráð hafnar styrkbeiðni vegna ferða- og gistikostnaðar. Samkvæmt fyrri samþykkt fjölskylduráðs mun ráðið útvega aðstöðu og bera kostnað af hádegishléum og efniskostnaði.
14.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026
Málsnúmer 202602040Vakta málsnúmer
Móðurmál á Norðurlandi óskar eftir styrk til að halda viðburð í tilefni þess að í febrúar er alþjóðlegur dagur móðurmálsins.
Fjölskylduráð samþykkir að veita styrk að upphæð 20.000 kr. til verkefnisins.
Fundi slitið - kl. 10:30.
Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir, skólastjóri Borgarhólsskóla, sat fundinn undir lið 2.
Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir, leikskólastjóri Grænuvalla, Helga Jónsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri og Benedikt Þorri Sigurjónsson, fulltrúi foreldraráðs, sátu fundinn undir liðum 2 og 3.
Ketill Gauti Árnason, verkefnastjóri á framkvæmdasviði, sat fundinn undir lið 3.
Lára Björg Friðriksdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir liðum 7 og 8.
Stefán Jón Sigurgeirsson, verkefnastjóri á velferðarsviði, sat fundinn undir liðum 9-12.
Ólöf Rún Pétursdóttir, fjölmenningarfulltrúi, sat fundinn undir liðum 13 og 14.