Lóðarhafar Höfða 3 og Höfða 5c óska eftir lóðarstækkun
Málsnúmer 202602002
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 233. fundur - 10.02.2026
Lóðarhafar að Höfða 3 og Höfða 5c óska eftir lóðarstækkun um 3 m til austurs, inn á lóð áhaldahúss Norðurþings. Meðfylgjandi erindi er rissmynd af óskaðri lóðarstækkun. Lóðarhafar telja mikilvægt að hafa lóðarréttindi út frá sínum húsum, m.a. til að sinna viðhaldi klæðinga utanhúss og minnka líkur á skemmdum á þeim. Sviðsstjóri gerði grein fyrir sjónarmiðum stjórnenda þjónustustöðvar þar sem lagst er gegn umbeðinni stækkun lóðarinnar.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur sér ekki fært að gefa eftir 3. m breytt svæði af lóð þjónustustöðvar enda myndi það skerða umtalsvert geymslu- og athafnasvæði lóðarinnar. Á hinn bóginn tekur ráðið undir sjónarmið umsækjenda varðandi mikilvægi þess að húseigendur hafi aðgang innan lóðar að eignum sínum og leggur til við sveitarstjórn að lóðarhöfum að Höfða 3 og Höfða 5c verði boðin lóðarstækkun sem fælist í að lóðarmörk yrðu 1,5 m austan við verkstæðisskemmu GG. Norðurþing býður umsækjendum einnig tímabundin afnot af nærsvæðum vegna endurnýjunar eða viðhald klæðninga. Skipulags- og byggingarfulltrúa verði falið að útbúa hnitsettar lóðarmyndir.
Sveitarstjórn Norðurþings - 161. fundur - 19.02.2026
Á 233. fundi skipulags- og framkvæmdaráðs var eftirfarandi bókað:

Tillaga skipulags- og framkvæmdaráðs samþykkt með atkvæðum Benónýs, Kristins, Aldeyjar, Ingibjargar, Eiðs, Bylgju og Hjálmars.
Áki sat hjá.
Helena vék undir þessum lið.
Áki sat hjá.
Helena vék undir þessum lið.