Fara í efni

Fjármögnun Lánasjóður sveitarfélaga

Málsnúmer 202602008

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 515. fundur - 12.02.2026

Fyrir byggðarráði liggur samþykki Lánasjóðs sveitarfélaga vegna beiðni um 400 m.kr lántöku sem er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun.
Byggðarráð Norðurþings samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 400.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Byggðarráð hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.

Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samþykkir bygggðarráð að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið m.a. til byggingar frístundarhúsnæðis við Borgarhólsskóla, hafnarframkvæmda og byggingar á sundlaug í Lundi í Öxarfirði. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.

Jafnframt er Bergþóri Bjarnasyni, fjármálastjóra, kt.110870-5239, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Norðurþings, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Byggðarráð vísar málinu til staðfestingar í sveitarstjórn.