Sameining sýslumannsembætta í eitt
Málsnúmer 202604007
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 519. fundur - 09.04.2026
Dómsmálaráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti sýslumanns sem verður stofnað 1. janúar 2027 við sameiningu núverandi níu sýslumannsembætta.
Byggðarráð vill minna á að á fyrri stigum málsins var gert ráð fyrir að embættið yrði staðsett á Húsavík.