Fara í efni

Lokaorð við lok kjörtímabils

Málsnúmer 202604103

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Norðurþings - 163. fundur - 30.04.2026

Forseti leggur til að á síðasta fundi sveitarstjórnar á kjörtímabilinu verði sérstakur lokaliður á dagskrá. Tilgangur þessa er að gefa færi á að staldra við í lok sameiginlegs starfs, líta yfir liðið kjörtímabil og þakka fyrir samstarfið, sem oft hefur einkennst af ólíkum sjónarmiðum en sameiginlegri ábyrgð gagnvart íbúum sveitarfélagsins.
Með þessum hætti er leitast við að ljúka kjörtímabilinu á yfirvegaðan og virðingarríkan hátt.
Hjálmar Bogi Hafliðason
Til máls tóku: Hjálmar, Helena, Benóný, Jónas, Kristinn, Soffía, Áki, Ingibjörg, Eiður og Katrín.

Lagt fram til kynningar.