Fara í efni

Fækkun fulltrúa í sveitarstjórn

Málsnúmer 202604105

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Norðurþings - 163. fundur - 30.04.2026

Undirrituð leggja til að ný sveitarstjórn kanni möguleika og kosti þess að fækka fulltrúum í sveitarstjórn úr 9 í 7 eins og lög gera ráð fyrir þegar samþykktir þess verða teknar upp til endurskoðunar.
Eiður Pétursson
Helena Eydís Ingólfsdóttir
Hjálmar Bogi Hafliðason
Kristinn Jóhann Lund
Soffía Gísladóttir
Til máls tóku: Hjálmar, Benóný, Jónas, Ingibjörg og Helena.

Undirrituð leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar V-, S- og M-listans leggjast gegn því að fulltrúum í sveitarstjórn verði fækkað úr níu í sjö. Norðurþing er víðfeðmt og fjölbreytt sveitarfélag með þrjá þéttbýliskjarna og ólíka hagsmuni íbúa. Slík uppbygging kallar á fjölbreytta aðkomu í ákvarðanatöku. Fækkun fulltrúa myndi óhjákvæmilega leiða til meiri einsleitni í hópi kjörinna fulltrúa, skerða lýðræðislega þátttöku og draga úr því að ólík sjónarmið fái að heyrast. Sá sparnaður sem felst í fækkun fulltrúa vegur ekki upp á móti þeim áhrifum sem slík breyting hefði á lýðræðislega umræðu og hagsmunagæslu innan sveitarfélagsins. Mikilvægt er að sveitarstjórn endurspegli breidd samfélagsins og tryggi að raddir ólíkra svæða og hópa fái notið sín.
Ingibjörg Benediktsdóttir
Jónas Þór Viðarsson
Áki Hauksson
Benóný Valur Jakobsson

Fyrirliggjandi tillaga samþykkt með atkvæðum Soffíu, Kristins, Helenu, Eiðs og Hjálmars.
Benóný, Jónas, Ingibjörg og Áki greiða atkvæði gegn tillögunni.