Fara í efni

Siðareglur kjörinna fulltrúa 2026-2030

Málsnúmer 202606007

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Norðurþings - 164. fundur - 11.06.2026

Samkvæmt 29. gr laga nr. 138/2011 skal sveitarstjórn setja sér siðareglur sem sendar skulu ráðuneytinu til staðfestingar. Ef siðareglur eru í gildi skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til endurskoðunar þeirra. Ef niðurstaðan er sú að siðareglur þarfnist ekki endurskoðunar halda þær gildi sínu. Tilkynna skal ráðuneytinu um þá niðurstöðu.
Til máls tók: Helena.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að siðareglur kjörinna fulltrúa verði óbreyttar.