Fara í efni

Loftbrú - breytt fyrirkomulag

Málsnúmer 202611033

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Norðurþings - 168. fundur - 12.11.2026

Forseti sveitarstjórnar óskar eftir umræðum um loftbrú, en á vefsíðu innviðaráðuneytisins var birti frétt þann 23. október síðastliðinn þar sem boðaðar eru breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar. Framvegis verður afsláttur 7.000 krónur á hvern fluglegg í stað 40% líkt og verið hefur fram að þessu. Síðan þá hefur innviðaráðherra boðað að styrkurinn verði hækkaður í 9.000 krónur á hvern fluglegg.
Til máls tóku: Helena, Kjartan, Eysteinn, Aldey og Rúnar.

Forseti leggur fram eftirfarandi ályktun:
Sveitarstjórn Norðurþings ályktar eftirfarandi vegna breytinga sem innviðaráðherra hefur boðað á fyrirkomulagi Loftbrúar, þar sem lagt er til að niðurgreiðsla ríkisins verði föst krónutala á hverja flugferð í stað þess fyrirkomulags sem gilt hefur frá upphafi, þar sem fargjöld hafa verið niðurgreidd um 40%:
Loftbrúin hefur frá upphafi reynst afar mikilvægt tæki til að jafna stöðu íbúa á landsbyggðunum og hefur þjónað þeim vel. Markmið hennar hefur verið tryggja íbúum landsbyggðanna betra aðgengi að opinberri þjónustu, sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, menningarviðburðum, stjórnsýslu og öðrum mikilvægum þáttum samfélagsins sem að stórum hluta eru staðsettir á höfuðborgarsvæðinu.
Sveitarstjórn hefur skilning á að ráðherra vilji að útgjöld málaflokka sem falla undir hans ráðuneyti séu fyrirsjáanleg, en telur þó að áður en endanleg ákvörðun verður tekin um breytingar á Loftbrú sé mikilvægt að fram fari ítarlegt mat á áhrifum þeirra á íbúa landsbyggðarinnar og á virkni Loftbrúarinnar sem stjórntækis hins opinbera til að jafna stöðu og tækifæri. Sveitarstjórnin hvetur því innviðaráðherra til að fresta fyrirhuguðum breytingum og að Loftbrú verið eins á árinu 2027 og verið hefur, þar til farið hefur fram fagleg greining á kostum og göllum núverandi kerfis í samanburði við aðrar útfærslur, eins og að taka upp fasta krónutöluniðurgreiðslu eða að að ríkið kaupi tiltekinn fjölda flugferða eða sætakvóta á ári sem standi íbúum landsbyggðarinnar til boða á sérstöku Loftbrúarfargjaldi.
Sveitarstjórn hvetur ráðherra jafnframt til að skoða hvort og hvernig Loftbrú geti nýst íþróttafélögum á landsbyggðinni sem bera mikinn ferðakostnað vegna þátttöku í mótum og keppnum. Slíkar aðstæður skapa verulegan kostnaðarmun milli félaga eftir búsetu og geta haft áhrif á möguleika barna og ungmenna til þátttöku í íþróttum.
Einnig hvetur sveitarstjórn innviðaráðherra til að skoða möguleika á að útfæra Loftbrúnna fyrir framhaldsskólanemendur á landsbyggðinni og hvort þeir geti notið loftbrúarkerfisins í tengslum við þátttöku í sameiginlegum verkefnum skólasamfélagsins, svo sem Morfís, Söngkeppni framhaldsskólanna, ráðstefnum, námskeiðum, vettvangsferðum og öðrum viðburðum sem að jafnaði fara fram á höfuðborgarsvæðinu. Þannig mætti stuðla að auknu jafnræði til náms, félagsþátttöku og menningarstarfs óháð búsetu.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að eigi að gera breytingar á Loftbrú sé haft í huga og að allar breytingar á fyrirkomulagi hennar verði unnar í samráði við sveitarfélög landsbyggðarinnar og notendur kerfisins. Markmiðið hlýtur áfram að vera að tryggja landsmönnum jöfn tækifæri og raunverulegt aðgengi að þjónustu, menntun, menningu og tómstundum óháð búsetu.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ályktun.