Sveitarstjórn Norðurþings
1.Beiðni um tímabundið leyfi frá sveitarstjórn Norðurþings
Málsnúmer 202611044Vakta málsnúmer
2.Norðurþing, kosning í nefndir til eins árs, fjögurra ára og tilnefningar á aðalfundi 2026-2030
Málsnúmer 202604065Vakta málsnúmer
Aðalmaður framboðsins í fjölskylduráði verði Guðni Már Kjartansson.
Varamaður í fjölskylduráði verði Þórður Sigmundur Sigmundsson.
2. varamaður í sveitarstjórn verði Guðni Már Kjartansson.
3.Áætlanir vegna ársins 2027-2030
Málsnúmer 202609122Vakta málsnúmer
Byggðarráð vísar fjárhagsáætlun Norðurþings til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 til síðari umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa þriggja ára áætlun fyrir árin 2028-2030 til síðari umræðu í sveitarstjórn.
4.Álagning gjalda 2027
Málsnúmer 202611005Vakta málsnúmer
Sveitarstjóri leggur fram eftirfarandi tillögu um álagningu gjalda vegna fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030.
Útsvar 14,97%
Fasteignaskattur:
A flokkur 0,450%
B flokkur 1,32%
C flokkur 1,55%
Lóðaleiga 1 1,50%
Lóðaleiga 2 2,50%
Vatnsgjald:
A flokkur 0,040%
B flokkur 0,450%
C flokkur 0,450%
Fráveitugjald:
A flokkur 0,095%
B flokkur 0,275%
C flokkur 0,275%
Sorphirðugjald: Hækki til samræmis við gjaldskrár um 2,5%.
Ágúst leggur fram breytingartillögu:
Fulltrúi M-Lista Samfélagsins leggur til við Byggðarráð að hækkanir á fasteignagjöldum Norðurþings fyrir árið 2027 verði að hámarki 2,5% (að meðaltali). Þetta taki til fasteignaskatts, lóðaleigu, fráveitugjalda, vatnsskatts og sorpgjalda.
Útsvar verði óbreytt 14,97%.
Álagningarstuðlar fasteignagjalda verði skv. eftirfarandi:
Fasteignaskattur:
A flokkur
0,4427%
B flokkur
1,2985%
C flokkur
1,5247%
Lóðaleiga 1
1,4756%
Lóðaleiga 2
2,4593%
Vatnsgjald:
A flokkur
0,3935%
B flokkur
0,4427%
C flokkur
0,4427%
Fráveitugjald:
A flokkur
0,0935%
B flokkur
0,2705%
C flokkur
0,2705%
Rökstuðningur:
Það er mikilvægt að Norðurþing taki virkan þátt í sameiginlegu átaki samfélagsins að ná niður verðbólgu og skapa forsendur fyrir lægri vöxtum. Samband íslenskra sveitarfélaga f.h. sveitarfélaganna, atvinnulífið undir forystu Samtaka atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin undir stjórn heildarsamtaka þeirra hafa mælt fyrir hóflegum hækkunum, að hámarki 2,5%.
Með því að hækka gjöld umfram þessi viðmið rýfur Norðurþing þá samstöðu í samfélaginu og leggur auknar byrðar á heimili og fyrirtæki sem hafa þegar tekið þátt í átakinu með hóflegum launahækkunum og aðhaldi í verðlagningu.
Norðurþing mun leggja að viðskiptavinum sínum og byrgjum að gæta hófs í gjaldskrá og verði á þjónustu. Því er mikilvægt að sveitarfélagið gangi fram með gott fordæmi og gefi skýran tón um þátttöku í þessu mikilvæga verkefni.
Hærri gjöld auka rekstrarkostnað fyrirtækja, draga úr ráðstöfunartekjum heimila og geta stuðlað að auknum verðbólguþrýstingi. Fyrirtæki hafa þegar gengið fram með góðu fordæmi og lýst yfir vilja til að halda gjaldskrám og þjónustu óbreyttum eða hækkanir verði mjög hóflegar. Íbúar Norðurþings og stéttarfélög þeirra hafa axlað ábyrgð með hóflegum kauphækkunum í þeirri trú að órofa samstaða verði um aðgerðirnar.
Aukinn kaup- og fjárfestamáttur íbúa og fyrirtækja styrkir rekstur Norðurþings hvað best.
Norðurþing hefur sjálft mikla hagsmuni af lægri verðbólgu og vöxtum, meðal annars vegna lægri fjármagnskostnaðar og bætts rekstrarumhverfis.
Sveitarfélagið á að sýna gott fordæmi, sýna aðhald í rekstri og leita hagræðingar áður en álögur á íbúa og atvinnulíf eru auknar umfram sameiginleg viðmið.
Ágúst Sigurður Óskarsson, M-Lista Samfélagsins.
Tillögu Ágústar er hafnað með atkvæðum Kjartans, Helenu og Aldeyjar.
Undirrituð óska bókað.
Fasteignamat í Norðurþingi hækkar að meðaltali um 4,2%. Breyting á álagningu á fasteignagjöld svo hækkun yrði að jafnaði 2,5% er tæknilega erfið í framkvæmd. Að auki mundi breytingin sem lögð er til skerða tekjur sveitarfélagsins með tvennum hætti, annars vegar fasteignagjöld og hins vegar framlög frá Jöfnunarsjóði.
Eigi að skerða tekjur sveitarfélagsins felur það jafnframt í sér að draga þarf úr útgjöldum frekar en orðið er. Það verður ekki gert án þess að komi til uppsagna og/eða frekari skerðingar á þjónustu.
Óbreytt álagning gjalda felur aftur á móti í sér að tekjur af fasteignagjöldum hækka um 4,2% og gerir sveitarfélaginu kleift að verja þjónustu og störf á vettvangi sveitarfélagsins.
Sveitarfélagið er í samkeppni við önnur sveitarfélög um íbúa. Lykilþættir í þeirri samkeppni eru m.a. þjónusta sveitarfélagsins í samanburði við önnur.
Undirrituð eru almennt hlynnt því að leitast við að lækka álagningu fasteignagjalda en þegar tekjur hafa lækkað eins og raunin er, teljum við ekki forsendur fyrir lækkun álagningar á þessum tímapunkti.
Helena Eydís Ingólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki
Kjartan Páll Þórarinsson, Samfylkingu
Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Framsóknarflokki
Ómar Gunnarsson, Óskalista
Aldey Unnar Traustadóttir, V lista velferðar
Byggðarráð vísar álagningu gjalda til umræðu í sveitarstjórn.
Rúnar leggur fram eftirfarandi bókun:
Ég mótmæli fyrirhugaðri 4,2% hækkun fasteignagjalda í Norðurþingi árið 2027 og legg til við sveitastjórn að hún endurskoði ákvörðun sína milli umræðna og að álagningarprósenta fasteignagjalda verði lækkuð.
Rúnar Traustason M-Lista samfélagsins.
Helena, Aldey, Eysteinn, Ómar, Þorsteinn, Rebekka, Kjartan og Bylgja leggja fram eftirfarandi bókun:
Hið rétta er að fasteignmat eigna í Norðurþingi er að hækka að meðaltali um 4,2%. Sveitarfélagið stjórnar ekki hækkun fasteignmats.
Gjöld sem innheimt eru með fasteignagjöldum hafa áfram sama álagningarstuðul og á yfirstandandi ári skv. tillögu sveitarstjóra og sorpgjöld taka 2,5% hækkun.
Það er því ekki efnislega rétt að fullyrða að fasteignagjöld séu að hækka um 4,2%.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa afgreiðslu álagningu gjalda til síðari umræðu í sveitarstjórn.
5.Gjaldskrár Norðurþings 2027
Málsnúmer 202610013Vakta málsnúmer
Byggðarráð vísar gjaldskrám vegna ársins 2027 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Lagt er til að gjaldskrár velferðarsviðs fyrir árið 2027 hækki um 2,5%.
Gjaldskrár velferðarsviðs eru eftirfarandi;
-Gjaldskrá leikskóla
-Gjaldskrá frístundar
-Gjaldskrá Tónlistarskóla Húsavíkur
-Gjaldskrá skólamötuneyta í Norðurþingi
-Gjaldskrá bókasafna
-Gjaldskrár íþrótta- og tómstundasviðs
-Gjaldskrár félagsþjónustu
Lagt er til að gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs fyrir árið 2027 hækki um 2,5%.
Gjaldskrár skipulags- og umhverfissviðs eru eftirfarandi:
-Gjaldskrá þjónustumiðstöðva Norðurþings
-Gjaldskrá gámaleigu og landleigu
-Gjaldskrá hunda og kattahalds
-Gjaldskrá kartöflugarða
-Gjaldskrá netaveiðileyfa í sjó
-Gjaldskrá slökkviliðs
Byggðarráð vísar gjaldskrám vegna ársins 2027 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa afgreiðslu gjaldskráa til síðari umræðu í sveitarstjórn.
6.Framkvæmdaáætlun 2027-2031
Málsnúmer 202609025Vakta málsnúmer
Byggðarráð vísar framkvæmdaáætlun 2027 og 2028-2030 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa fyrirliggjandi framkvæmda- og fjárfestingaáæltun til síðari umræðu í sveitarstjórn.
7.Fjárhags- og framkvæmdaáætlun Hafnasjóðs Norðurþings 2027
Málsnúmer 202610134Vakta málsnúmer
Stjórn Hafnasjóðs vísar áætlunum Hafnasjóðs Norðurþings til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa fyrirliggjandi fjárhags- og framkvæmdaáætlun stjórnar Hafnasjóðs til síðari umræðu í sveitarstjórn.
8.Gjaldskrá hafna Norðurþings 2027
Málsnúmer 202610133Vakta málsnúmer
Stjórn Hafnasjóðs vísar drögum af gjaldskrá vegna ársins 2027 til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa fyrirliggjandi gjaldskrá til síðari umræðu í sveitarstjórn.
9.Þjónustustefna Norðurþings
Málsnúmer 202305116Vakta málsnúmer
Þjónustustefnan verður sett í rafrænt íbúasamráð sem auglýst verður nánar á vef sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa þjónustustefnu sveitarfélagsins til síðari umræðu.
10.Viðauki - kostnaður vegna umferðaröryggisáætlunar
Málsnúmer 202610063Vakta málsnúmer
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka að fjárhæð 4.000.000 kr. og vísar honum til afgreiðslu í sveitarstjórn Norðurþings.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi viðauka.
11.Loftbrú - breytt fyrirkomulag
Málsnúmer 202611033Vakta málsnúmer
Forseti leggur fram eftirfarandi ályktun:
Sveitarstjórn Norðurþings ályktar eftirfarandi vegna breytinga sem innviðaráðherra hefur boðað á fyrirkomulagi Loftbrúar, þar sem lagt er til að niðurgreiðsla ríkisins verði föst krónutala á hverja flugferð í stað þess fyrirkomulags sem gilt hefur frá upphafi, þar sem fargjöld hafa verið niðurgreidd um 40%:
Loftbrúin hefur frá upphafi reynst afar mikilvægt tæki til að jafna stöðu íbúa á landsbyggðunum og hefur þjónað þeim vel. Markmið hennar hefur verið tryggja íbúum landsbyggðanna betra aðgengi að opinberri þjónustu, sérhæfðri heilbrigðisþjónustu, menningarviðburðum, stjórnsýslu og öðrum mikilvægum þáttum samfélagsins sem að stórum hluta eru staðsettir á höfuðborgarsvæðinu.
Sveitarstjórn hefur skilning á að ráðherra vilji að útgjöld málaflokka sem falla undir hans ráðuneyti séu fyrirsjáanleg, en telur þó að áður en endanleg ákvörðun verður tekin um breytingar á Loftbrú sé mikilvægt að fram fari ítarlegt mat á áhrifum þeirra á íbúa landsbyggðarinnar og á virkni Loftbrúarinnar sem stjórntækis hins opinbera til að jafna stöðu og tækifæri. Sveitarstjórnin hvetur því innviðaráðherra til að fresta fyrirhuguðum breytingum og að Loftbrú verið eins á árinu 2027 og verið hefur, þar til farið hefur fram fagleg greining á kostum og göllum núverandi kerfis í samanburði við aðrar útfærslur, eins og að taka upp fasta krónutöluniðurgreiðslu eða að að ríkið kaupi tiltekinn fjölda flugferða eða sætakvóta á ári sem standi íbúum landsbyggðarinnar til boða á sérstöku Loftbrúarfargjaldi.
Sveitarstjórn hvetur ráðherra jafnframt til að skoða hvort og hvernig Loftbrú geti nýst íþróttafélögum á landsbyggðinni sem bera mikinn ferðakostnað vegna þátttöku í mótum og keppnum. Slíkar aðstæður skapa verulegan kostnaðarmun milli félaga eftir búsetu og geta haft áhrif á möguleika barna og ungmenna til þátttöku í íþróttum.
Einnig hvetur sveitarstjórn innviðaráðherra til að skoða möguleika á að útfæra Loftbrúnna fyrir framhaldsskólanemendur á landsbyggðinni og hvort þeir geti notið loftbrúarkerfisins í tengslum við þátttöku í sameiginlegum verkefnum skólasamfélagsins, svo sem Morfís, Söngkeppni framhaldsskólanna, ráðstefnum, námskeiðum, vettvangsferðum og öðrum viðburðum sem að jafnaði fara fram á höfuðborgarsvæðinu. Þannig mætti stuðla að auknu jafnræði til náms, félagsþátttöku og menningarstarfs óháð búsetu.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að eigi að gera breytingar á Loftbrú sé haft í huga og að allar breytingar á fyrirkomulagi hennar verði unnar í samráði við sveitarfélög landsbyggðarinnar og notendur kerfisins. Markmiðið hlýtur áfram að vera að tryggja landsmönnum jöfn tækifæri og raunverulegt aðgengi að þjónustu, menntun, menningu og tómstundum óháð búsetu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi ályktun.
12.Endurskoðun reglna lista- og menningarsjóð Norðurþings 2026
Málsnúmer 202610031Vakta málsnúmer
Fjölskylduráð samþykkir óbreyttar reglur lista- og menningarsjóðs Norðurþings.
Fyrirliggjandi reglur samþykktar samhljóða.
13.Umsókn um lóð á iðnaðarsvæðinu á Bakka
Málsnúmer 202610165Vakta málsnúmer
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að EyrieDC ehf verði úthlutað, með fyrirvörum, lóðinni eins og hún er kynnt í tillögu að deiliskipulagi. Fyrirvarar eru um gildistöku deiliskipulags og samninga væntanlegs lóðarhafa um orkukaup og raforkuflutning til fyrirhugaðrar starfsemi. Fyrirvarar eru nánar útlistaðir í viðauka við lóðarleigusamning. Ráðið heimilar byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir rannsóknarholum.
Fyrirliggjandi tillaga að lóðaúthlutun er samþykkt samhljóða.
14.Fjölskylduráð - 250
Málsnúmer 2610007FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
15.Fjölskylduráð - 251
Málsnúmer 2610014FVakta málsnúmer
Til máls tók undir lið 7 "Stækkun vallarhússins við fótboltavöllinn á Húsavík": Rebekka og Eysteinn.
Til máls tók undir lið 8 "Erindi um að breyta aftur opnunartíma Sundlaugar Húsavíkur": Aldey.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
16.Skipulags- og framkvæmdaráð - 245
Málsnúmer 2609017FVakta málsnúmer
17.Skipulags- og framkvæmdaráð - 246
Málsnúmer 2610010FVakta málsnúmer
18.Skipulags- og framkvæmdaráð - 247
Málsnúmer 2610015FVakta málsnúmer
Til máls tók undir lið 6 "Erindi til Norðurþings um heildstæða endurbóta- og viðhaldsáætlun fyrir Samkomuhúsið að Garðarsbraut": Aldey.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
19.Byggðarráð Norðurþings - 530
Málsnúmer 2610009FVakta málsnúmer
20.Byggðarráð Norðurþings - 531
Málsnúmer 2610016FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
21.Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings - 47
Málsnúmer 2611003FVakta málsnúmer
22.Orkuveita Húsavíkur ohf - 283
Málsnúmer 2610004FVakta málsnúmer
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 15:35.
Fallinn er frá Helgi Ólafsson rafvirki sem fæddist á Raufarhöfn 31. maí 1929. Hann lést 27. október 2026. Helgi var sonur hjónanna Ólafs Árna Ágústssonar og konu hans Sigríðar Guðmundsdóttur og var elstur sinna systkina.
Helgi ólst upp á Raufarhöfn og gekk þar í barna- og unglingaskóla. Hann byrjaði snemma að vinna og fyrsta launaða vinna hans var líklega að safna snjó og draga á sleða fyrir íshús staðarins, þá innan við fermingu. Haustið 1945 lá leið Helga til Siglufjarðar til að læra til rafvirkja á rafmagnsverkstæði Síldarverksmiðja ríkisins. Á Siglufirði kynntist hann verðandi eiginkonu sinni, Stellu Borgþóru Þorláksdóttur. Þau trúlofuðu sig í lok ágúst 1948, hann 18 ára og hún 16 ára, og gengu síðar í hjónaband 17. júlí 1955. Helgi og Stella eignuðust 6 börn og eru afkomendur þeirra orðnir 60 talsins.
Helgi tók sveinspróf í rafvirkjun árið 1950 og meistarréttindi 5 árum síðar. Á Siglufirði kynntist Helgi sjálfstæðisstefnunni og starfi Sjálfstæðisflokksins. Þegar Helgi og Stella settust að á Raufarhöfn stofnaði hann þar Félag Sjálfstæðismanna og var formaður þess félags til æviloka. Helgi sat í sveitarstjórn Raufarhafnarhrepps í 20 ár fyrir Sjálfstæðisflokkinn, á árunum 1974-1994.
Helgi var jafnaldri Sjálfstæðisflokksins og mikill stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins og lét ekki sitt eftir liggja í starfi flokksins. Auk þess að vera í sveitarstjórn sem fulltrúi flokksins í 20 ára, skipaði hann heiðurssæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi árið 2009. Í Alþingiskosningunum 2021 skipaði hann 11. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, þá 92 ára, og tók síðan heiðurssætið á ný í kosningunum 2024, þá 95 ára.
Helgi lagði heimabyggð sinni lið af dugnaði og alúð og skilur eftir sig dýrmætt framlag til samfélagsins á Raufarhöfn. Helgi vann við rafvirkjun alla sína starfsævi, fyrst hjá Síldarverksmiðjunum og síðar SR-mjöli sem sjálfstæður verktaki. Einnig vann hann við vélagæslu og fleira hjá Frystihúsinu Jökli. Segja má að Helgi hafi tekið þátt í nánast allri sögu síldarverksmiðjunnar á Raufarhöfn því að þar hóf hann störf árið 1944. 60 árum síðar höguðu atvikin því þannig, að þegar vélar og tæki síldarverksmiðjunnar voru tekin niður árið 2006 og send úr landi, var Helgi fenginn til þess verks. Hann var slökkviliðsstjóri á Raufarhöfn á árunum 1968-1994 og fyrir það hlaut hann viðurkenningu frá Brunamálastofnun ríkisins. Þá var hann umboðsmaður og fréttaritari Morgunblaðsins í um þrjá áratugi. Helgi var meðal stofnenda Lionsklúbbs Raufarhafnar og var fyrsti formaður Félags eldri borgara á Raufarhöfn frá stofnun þess félags árið 2014 til ársins 2020. Fyrir framlag sitt til atvinnulífs, lista og menningar í heimabyggð var Helgi sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag 2021. Hann hlaut einnig aðrar viðurkenningar fyrir framlag sitt til iðnaðar- og samfélagsmála, var m.a. kjörinn iðnaðarmaður ársins 2020, þá 91 árs.
Útför Helga fór fram frá Raufarhafnarkirkju 7. nóvember 2026 síðastliðinn.
Fyrir hönd sveitarstjórnar Norðurþings sendi ég fjölskyldu og aðstandendum Helga okkar dýpstu samúðarkveðjur. Ég vil biðja sveitarstjórnarfulltrúa og starfsfólks fundarins að rísa úr sætum af virðingu við Helga og með þakklæti fyrir störf hans í þágu sveitarfélagsins.
Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar