Ósk um lóðarsamning fyrir fjárhús að Lækjargili 9
Málsnúmer 202611072
Vakta málsnúmerSkipulags- og framkvæmdaráð - 248. fundur - 24.11.2026
Friðrik Jónasson, Kári Páll Jónasson, Þóra Kristín Jónasdóttir og Braddi ehf óska þess að gerður verði lóðarleigusamningur vegna fjárhúss og hlöðu með fastanúmer 215-3528 og 215-3529 sem standa á lóðinni að Lækjargili 9 á Húsavík. Í húsinu er stundaður fjárbúskapur til samræmis við skipulagsskilmála.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að húseigendum verði úthlutað lóðinni að Lækjargili 9 undir fyrirliggjandi hús.