Fara í efni

Skipulags- og framkvæmdaráð

248. fundur 24. nóvember 2026 kl. 13:00 - 14:15 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Þorsteinn Snævar Benediktsson formaður
  • Bylgja Steingrímsdóttir varaformaður
  • Salbjörg Matthíasdóttir aðalmaður
  • Brynjar Takacs Baldursson aðalmaður
  • Ómar Gunnarsson aðalmaður
  • Agnieszka Szczodrowska áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Gaukur Hjartarson skipul.- og byggingarfulltrúi
  • Eyrún Torfadóttir Ritari
  • Ketill Gauti Árnason sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Fundargerð ritaði: Eyrún Torfadóttir stjórnsýslu- og þjónustufulltrúi
Dagskrá
Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri, sat fundinn undir liðum 2 og 3.

1.Erindi frá Skólastjóra Tónlistarskóla Húsavíkur er varðar brunavarnir og öryggismál í álmu Tónlistarskólans.

Málsnúmer 202611026Vakta málsnúmer

Fyrir skipulags- og framkvæmdaráði liggur erindi frá skólastjóra Tónlistarskóla Húsavíkur er varðar brunavarnir og öryggismál í álmu Tónlistarskólans á Húsavík.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að koma brunavörnum og öryggismálum í viðeigandi horf í Tónlistarskóla Húsavíkur.

2.Bygging sundlaugar í Lundi

Málsnúmer 202608102Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti fyrir skipulags- og framkvæmdaráði
stöðu mála á sundlauginni í Lundi og væntanlegar framkvæmdir á svæðinu.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að vinna frekari kostnaðaráætlun og útbúa útboðsgögn í samræmi við framkvæmdaáætlun.

3.Framkvæmdaáætlun 2027-2030

Málsnúmer 202609025Vakta málsnúmer

Skipulags- og framkvæmdaráð hefur framkvæmdaáætlun 2027 - 2030 til umræðu.
Skipulags- og framkvæmdaráð staðfestir framkvæmdaáætlun 2027-2030 og vísar til samþykktar í byggðarráði.

4.Útboð snjómoksturs á Raufarhöfn 2027-2030

Málsnúmer 202610135Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs kynnti fyrir skipulags- og framkvæmdaráði útboðsgögn vegna snjómoksturs á Raufarhöfn frá 2027-2030.
Skipulags- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að auglýsa útboð á snjómokstri á Raufarhöfn 2027-2030.

5.Ósk um breytingu staðfangs Álfhóls 2 í Hjarðarhól 3 á Húsavík

Málsnúmer 202611032Vakta málsnúmer

Eigendur Álfhóls 2 á Húsavík óska eftir að staðfangi hússins verði breytt í Hjarðarhóll 3 í ljósi þess að aðkoma að húsinu er frá Hjarðarhóli.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir breytingu staðfangsins og felur skipulagsfulltrúa að breyta skráningunni.

6.Ósk um að heimilisfang Borgarhólsskóla verði endurskoðað

Málsnúmer 202610112Vakta málsnúmer

Skólastjóri Borgarhólsskóla óskar þess að staðfangi Borgarhólsskóla verði breytt frá núverandi staðfangi sem Skólagarður 1. Staðfangið Skólagarður 1 vísar til starfsmannainngangs hússins sem ekki sé heppilegt. Réttara væri að vísa til aðalinngang þar sem m.a. eru til staðar bílastæði fyrir þá sem sækja húsið heim. Á síðasta fundi fjölskyldurráðs var erindu vísað til afgreiðslu í skipulags- og framkvæmdaráði.
Skipulags- og framkvæmdaráð fellst á sjónarmið skólastjóra og felur skipulagsfulltrúa að breyta skráðu staðfangi í Skólastígur 1.

7.Ósk um breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins á Bakka 1.áfangi

Málsnúmer 202611082Vakta málsnúmer

Verkís, f.h. Landsnets hf, óskar heimildar til að vinna tillögu að breytingu deiliskipulags 1. áfanga iðnaðarsvæðisins á Bakka. Í breytingunni yrði horft til þess að rýmka byggingarreit lóðar Landsnets án þess að breyta stærðum lóðarinnar eða hámarksumfangi bygginga innan hennar. Erindi fylgir fullbúin tillaga að breytingu deiliskipulagsins.
Skipulags- og framkvæmdaráð samþykkir að Verkís, f.h. Landsnets, vinni tillögu að breytingu deiliskipulagsins. Ráðið fellst einnig á að kynna fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagsbreytingu skv. ákvæðum skipulagslaga. Skipulags- og framkvæmdaráð telur deiliskipulagsbreytingu þessa litla í heildarsamhengi gildandi deiliskipulags og telur ekki þörf á að vinna skipulagslýsingu vegna skipulagsbreytingarinnar. Ennfremur telur ráðið að allar meginforsendur liggi fyrir um uppbyggingu lóðarinnar í aðalskipulagi og því sé ekki þörf á að kynna breytinguna á vinnslustigi á almennum fundi sbr. 4. mgr. 40. gr. áður en hún fer í lögformlega auglýsingu.

Skipulags- og framkvæmdaráð felur því skipulagsfulltrúa að auglýsa deiliskipulagið skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga.

8.Ósk um lóðarsamning fyrir fjárhús að Lækjargili 9

Málsnúmer 202611072Vakta málsnúmer

Friðrik Jónasson, Kári Páll Jónasson, Þóra Kristín Jónasdóttir og Braddi ehf óska þess að gerður verði lóðarleigusamningur vegna fjárhúss og hlöðu með fastanúmer 215-3528 og 215-3529 sem standa á lóðinni að Lækjargili 9 á Húsavík. Í húsinu er stundaður fjárbúskapur til samræmis við skipulagsskilmála.
Skipulags- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að húseigendum verði úthlutað lóðinni að Lækjargili 9 undir fyrirliggjandi hús.

9.Umsagnarbeiðni frá Langanesbyggð v.breytingu á aðalskipulagi Tunguárvirkjun Þistilfirði

Málsnúmer 202611066Vakta málsnúmer

Langanesbyggð óskar umsagnar vegna breytingar á aðalskipulagi vegna Tunguárvirkjunar í Þistilfirði.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur ekki tilefni til athugasemda við skipulagsbreytinguna af hálfu Norðurþings.

10.Umsagnarbeiðni frá Langanesbyggð v.nýs deiliskipulags Tunguárvirkjun Þistilfirði

Málsnúmer 202611067Vakta málsnúmer

Langanesbyggð óskar umsagna vegna tillögu að deiliskipulagi fyrir Tunguárvirkjun í Þistilfirði.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur ekki tilefni til athugasemda við deiliskipulagstillöguna af hálfu Norðurþings.

11.Umsagnarbeiðni frá Langanesbyggð v.breytingar á aðalskipulagi Staðarárvirkjun í Bakkafirði

Málsnúmer 202611065Vakta málsnúmer

Langanesbyggð óskar umsagna vegna breytinga aðalskipulags vegna fyrirhugaðrar Staðarárvirkjunar í Bakkafirði.
Skipulags- og framkvæmdaráð telur ekki tilefni til athugasemda við skipulagsbreytinguna af hálfu Norðurþings.

Fundi slitið - kl. 14:15.