Fara í efni

Vátryggingar eigna og mannvirkja Orkuveitu Húsavíkur hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands

Málsnúmer 202611093

Vakta málsnúmer

Orkuveita Húsavíkur ohf - 284. fundur - 26.11.2026

Stjórn leggur til að farið verði yfir vátryggingar eigna og mannvirkja Orkuveitu Húsavíkur hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Með hliðsjón af umfangi og mikilvægi innviða Orkuveitunnar er lagt til að vátryggingar og vátryggingarfjárhæðir verði endurskoðaðar með það að markmiði að tryggja að eignir félagsins séu rétt og fullnægjandi vátryggðar vegna náttúruhamfara.
Stjórn samþykkir að vátryggingar Orkuveitu Húsavíkur hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands verði teknar til heildstæðrar endurskoðunar með það að markmiði að tryggja að eignir og mannvirki félagsins séu rétt og fullnægjandi vátryggð. stjórn OH felur rekstrarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir stjórn að nýju.