Fara í efni

Orkuveita Húsavíkur ohf

284. fundur 26. nóvember 2026 kl. 13:00 - 14:45 Orkustöðin, Hrísmóum 1
Nefndarmenn
  • Guðrún Þóra Hallgrímsdóttir formaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson varaformaður
  • Ágúst Sigurður Óskarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Benedikt Þór Jakobsson rekstrarstjóri
Fundargerð ritaði: Benedikt Þór Jakobsson Rekstrarstjóri Orkuveitu Húsavíkur
Dagskrá

1.Vátryggingar eigna og mannvirkja Orkuveitu Húsavíkur hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands

Málsnúmer 202611093Vakta málsnúmer

Stjórn leggur til að farið verði yfir vátryggingar eigna og mannvirkja Orkuveitu Húsavíkur hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Með hliðsjón af umfangi og mikilvægi innviða Orkuveitunnar er lagt til að vátryggingar og vátryggingarfjárhæðir verði endurskoðaðar með það að markmiði að tryggja að eignir félagsins séu rétt og fullnægjandi vátryggðar vegna náttúruhamfara.
Stjórn samþykkir að vátryggingar Orkuveitu Húsavíkur hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands verði teknar til heildstæðrar endurskoðunar með það að markmiði að tryggja að eignir og mannvirki félagsins séu rétt og fullnægjandi vátryggð. stjórn OH felur rekstrarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir stjórn að nýju.

2.Grænar fjárfestingar

Málsnúmer 202611087Vakta málsnúmer

Stjórn OH tekur til umræðu möguleika styrki fyrir fjárfestingar (EUCF)

https://www.samband.is/european-city-facility
Stjórn OH felur rekstrarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir stjórn að nýju.

3.Stefnumótun Orkuveitu Húsavíkur

Málsnúmer 202611095Vakta málsnúmer

Rekstrarstjóri leggur til að hafin verði vinna við stefnumótun Orkuveitu Húsavíkur. Fyrir liggur minnisblað um mögulega nálgun og fyrirkomulag vinnunnar. Óskað er eftir afstöðu stjórnar til þess að ráðist verði í stefnumótunarvinnu fyrir félagið.
Stjórn samþykkir að hefja vinnu við stefnumótun Orkuveitu Húsavíkur og felur rekstrarstjóra að undirbúa næstu skref.

4.Ávöxtun lausafjár Orkuveitu Húsavíkur

Málsnúmer 202611096Vakta málsnúmer

Stjórn OH tekur til umræðu ávöxtunarleiðir á lausafé félagsins.
Stjórn samþykkir að kanna hagkvæma kosti til ávöxtunar lausafjár félagsins, með áherslu á öryggi, aðgengi að fjármunum og ávöxtun. Fjármálastjóra er falið að afla samanburðar á valkostum og leggja fyrir stjórn að nýju.

5.Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála

Málsnúmer 202208057Vakta málsnúmer

Kynning rekstrarstjóra á stöðu mála.
Stjórn lýsir ánægju með framgang framkvæmda við tengingu veitukerfa við nýtt hjúkrunarheimili. Fráveitulagnir eru komnar á sinn stað og lagnir fyrir heitt og kalt vatn nánast komnar að lóðarmörkum. Frekari lagnavinna er háð framvindu jarðvinnu við húsið. Þá er gert ráð fyrir að fyrirhuguðum malbikunarframkvæmdum fyrir veturinn ljúki í þessari viku.

Fundi slitið - kl. 14:45.