Fara í efni

Raforkutenging við Dettifoss að vestan

Málsnúmer 202611098

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Norðurþings - 533. fundur - 26.11.2026

Fyrir byggðarráði liggur minnisblað um raforkutengingu við Dettifoss að vestan.
Byggðarráð tekur undir bókun Svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og ítrekar mikilvægi uppbyggingar raforkuinnviða á svæðinu.

"Svæðisráð telur mjög brýnt að tryggð verði lagning raforku að Dettifossi vestan ár fyrir grunninnviði og hleðslu rafknúinna ökutækja. Ráðið styður að Náttúruverndarstofnun fylgi verkefninu eftir gagnvart RARIK og ráðuneytinu og leggi fram afl- og orkuspá fyrir fyrirhugaða uppbyggingu.

Svæðisráð norðursvæðis óskar eftir að minnisblaðið verði kynnt fyrir sveitafélögunum, Þingeyjarsveit og Norðurþingi og óskað eftir skriflegri afstöðu þeirra til verkefnisins. Demantshringurinn er ein best þekkta ferðamannaleið á Íslandi og Dettifoss hefur þar mjög mikið aðdráttarafl. Reynslan er sú að með bættri þjónustu fjölgar gestum, því er um mikilvægt byggðarmál að ræða."