Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

533. fundur 26. nóvember 2026 kl. 08:30 - 12:05 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Kjartan Páll Þórarinsson formaður
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir varaformaður
  • Aldey Unnar Traustadóttir aðalmaður
  • Eysteinn Heiðar Kristjánsson áheyrnarfulltrúi
  • Rúnar Traustason áheyrnarfulltrúi
  • Ómar Gunnarsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason sveitarstjóri
  • Kristín Anna Hreinsdóttir fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason Sveitarstjóri
Dagskrá
Fundargerð ritaði Kristín Anna Hreinsdóttir, fjármálastjóri.

1.Atvinnumál í Norðurþingi

Málsnúmer 202508067Vakta málsnúmer

Á fund byggðarráðs kemur Björn Gíslason verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka og fer yfir stöðu mála í atvinnuuppbyggingu á svæðinu.
Byggðarráð þakkar Birni Gíslasyni fyrir greinargóða kynningu á stöðu mála.

2.Grænar fjárfestingar

Málsnúmer 202611087Vakta málsnúmer

Formaður byggðarráðs óskar eftir umræðu um grænar fjárfestingar og mögulega styrki vegna fjárfestinga í orkuskiptum.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram og vísar málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs.

3.Erindi til sveitarstjórnar Norðurþings

Málsnúmer 202611079Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja þrjú erindi þar sem skorað er á sveitarstjórn Norðurþings að endurskoða afstöðu sína til vindorkuvers á Hólaheiði og Melrakkasléttu og fara fram á að vindorkuverið Hnotasteinn verði sett í flokk friðunar. Náttúrufræðistofnun Íslands og fuglafræðingar telja að vindmyllur á þessu svæði munu hafa slæm áhrif á íslenska rjúpnastofninn þar sem fyrirhugað vindorkuver er inn á og í næsta nágrenni við mikilvægustu varpsvæði.

Ómar vék af fundi undir þessum lið.

Byggðarráð þakkar fyrir innsend erindi.

4.Starfshópur um rekstur Slökkviliðs Norðurþings

Málsnúmer 202608039Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fyrir niðurstöður starfshóps um slökkvilið Norðurþings og fundargerðir starfshópsins.

Henning Þór Aðalmundsson slökkviliðsstjóri kemur á fund byggðarráðs kl 10:00 og fer yfir niðurstöður starfshóps.
Eysteinn vék af fundi undir þessum lið.

Byggðarráð þakkar Henning fyrir komuna á fundinn.

Byggðarráð heldur áfram umfjöllun á næsta fundi ráðsins.

5.Álagning gjalda 2027

Málsnúmer 202611005Vakta málsnúmer

Byggðarráð heldur áfram umræðu sinni um álagningu gjalda.
Rúnar Traustason fulltrúi M-Lista Samfélagsins leggur fram eftirfarandi tillögu:
Að álagsprósenta fasteignaskatts á A-flokk (íbúðarhúsnæði) fari úr 0.450% niður í 0.440%.

Tillagan er felld með atkvæðum: Kjartans Páls, Helenu og Aldeyjar.

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi álagningu gjalda og vísar þeim til seinni umræðu í sveitarstjórn.

6.Áætlanir vegna ársins 2027-2030

Málsnúmer 202609122Vakta málsnúmer

Byggðarráð heldur áfram umfjöllun sinni um fjárhagsáætlun Norðurþings.
Byggðarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Norðurþings til næsta fundar byggðarráðs.

7.Framkvæmdaáætlun 2027-2030

Málsnúmer 202609025Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja drög að framkvæmdaáætlun 2027-2030.
Byggðarráð vísar framkvæmdaáætlun 2027-2031 til síðari umræðu í sveitarstjórn.

8.Raforkutenging við Dettifoss að vestan

Málsnúmer 202611098Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur minnisblað um raforkutengingu við Dettifoss að vestan.
Byggðarráð tekur undir bókun Svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs og ítrekar mikilvægi uppbyggingar raforkuinnviða á svæðinu.

"Svæðisráð telur mjög brýnt að tryggð verði lagning raforku að Dettifossi vestan ár fyrir grunninnviði og hleðslu rafknúinna ökutækja. Ráðið styður að Náttúruverndarstofnun fylgi verkefninu eftir gagnvart RARIK og ráðuneytinu og leggi fram afl- og orkuspá fyrir fyrirhugaða uppbyggingu.

Svæðisráð norðursvæðis óskar eftir að minnisblaðið verði kynnt fyrir sveitafélögunum, Þingeyjarsveit og Norðurþingi og óskað eftir skriflegri afstöðu þeirra til verkefnisins. Demantshringurinn er ein best þekkta ferðamannaleið á Íslandi og Dettifoss hefur þar mjög mikið aðdráttarafl. Reynslan er sú að með bættri þjónustu fjölgar gestum, því er um mikilvægt byggðarmál að ræða."

9.Viðveru- og velferðarstefna Norðurþings

Málsnúmer 202610163Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja drög að viðveru- og velferðarstefnu Norðurþings.
Byggðarráð vinnur áfram að viðveru- og velferðarstefnu Norðurþings á næsta fundi sínum.

10.Völsungur - umsókn um styrk vegna 100 ára afmælis 2027

Málsnúmer 202611035Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur umsókn Íþróttafélagsins Völsungs um styrk að fjárhæð 1.000.000 kr. vegna undirbúnings og framkvæmdar 100 ára afmælis félagsins árið 2027. Fyrirhugaðir eru fjölbreyttir viðburðir allt árið, auk sérstakrar afmælishátíðar í apríl.
Byggðarráð vísar til ákvörðunar sveitarstjórnar um afmælisgjöf til Íþróttafélagsins Völsungs og hafnar fyrirliggjandi styrkbeiðni vegna undirbúnings 100 ára afmælis félagsins.

11.Aðalfundur Grænn Iðngarður á Bakka ehf.vegna ársins 2025

Málsnúmer 202604010Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur að skipa í stjórn Græns Iðngarðar á Bakka ehf.
Aðalfundur Græns iðngarðs á Bakka ehf. verður haldinn þann 10. desember nk. kl 11:00 á skrifstofu Norðurþings.

Byggðarráð tilnefnir í stjórn; Helenu Eydísi, Kjartan Pál og Rúnar. Til vara eru tilnefnd: Eysteinn Heiðar, Aldey og Ómar.

12.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til kynningar fundargerð 1006. fundar stjórnar Sambandsins frá 13. nóvember 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Til umsagnar 285.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis

Málsnúmer 202611084Vakta málsnúmer

Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 285. mál - Aðgangur barna að samfélagsmiðlum. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 2. desember nk.
Lagt fram til kynningar.

14.Stefnumótandi byggðaáætlun

Málsnúmer 202604047Vakta málsnúmer

Formaður byggðarráðs óskar eftir umræðu um byggðaáætlun 2027-2041.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að skila inn umsögn til samræmis við umræður á fundinum.

Fundi slitið - kl. 12:05.