Fyrir sveitarstjórn liggur fundargerð 520. fundar byggðarráðs.
Til máls tóku undir lið 7 "Ósk um upplýsingar frá Orkuveitu Húsavíkur": Helena, Jónas, Hjálmar og Áki.
Undirrituð leggja fram eftirfarandi bókun: Undirrituð telja að innheimta vegna heitavatnsnotkunar stórnotenda í hópi viðskiptavina Orkuveitu Húsavíkur hafi verið og séu í fullu samræmi við fyrri ákvarðanir stjórnar og viðskiptastefnu félagsins. Undirrituð bera fullt traust til meirihluta stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf til að endurskoða gildandi samninga við stórnotendur og afsláttarkjör sem stórnotendur njóta. Undirrituð harma jafnframt að fyrirtæki í okkar samfélagi hafi verið dregin inn í opinbera umfjöllun með þessum hætti. Eiður Pétursson Helena Eydís Ingólfsdóttir Hjálmar Bogi Hafliðason Kristinn Jóhann Lund Soffía Gísladóttir
Til máls tók undir lið 12 "Í átt að inngildingu - viðtalsrannsókn meðal erlendra íbúa í Norðurþingi": Hjálmar.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.
Undirrituð leggja fram eftirfarandi bókun:
Undirrituð telja að innheimta vegna heitavatnsnotkunar stórnotenda í hópi viðskiptavina Orkuveitu Húsavíkur hafi verið og séu í fullu samræmi við fyrri ákvarðanir stjórnar og viðskiptastefnu félagsins. Undirrituð bera fullt traust til meirihluta stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf til að endurskoða gildandi samninga við stórnotendur og afsláttarkjör sem stórnotendur njóta. Undirrituð harma jafnframt að fyrirtæki í okkar samfélagi hafi verið dregin inn í opinbera umfjöllun með þessum hætti.
Eiður Pétursson
Helena Eydís Ingólfsdóttir
Hjálmar Bogi Hafliðason
Kristinn Jóhann Lund
Soffía Gísladóttir
Til máls tók undir lið 12 "Í átt að inngildingu - viðtalsrannsókn meðal erlendra íbúa í Norðurþingi": Hjálmar.
Aðrir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar.