Fara í efni

Orkuveita Húsavíkur ohf

206. fundur 07. maí 2020 kl. 14:00 - 14:45 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Gunnar Hrafn Gunnarsson framkv.- og þjónustufulltrúi
  • Sigurgeir Höskuldsson formaður
  • Bergur Elías Ágústsson varaformaður
  • Guðmundur Halldór Halldórsson varamaður
Fundargerð ritaði: Gunnar Hrafn Gunnarsson framkvæmdastjóri
Dagskrá
Fundarstjóri aðalfundar Orkuveitu Húsavíkur ohf var Snæbjörn Sigurðarson.
Fulltrúi eiganda OH var Silja Jóhannesdóttir.
Endurskoðandi OH er Ragnar Jóhann Jónsson.

1.Aðalfundur OH 2020 - Skýrsla stjórnar

Málsnúmer 202004091Vakta málsnúmer

Formaður stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf. fer yfir skýrslu stjórnar OH. Hluthöfum skýrt frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
Fundarstjóri kannaði lögmæti fundarins. Silja Jóhannesdóttir, fer með umboð hluthafa á fundinum. Sigurgeir Höskuldsson, stjórnarformaður Orkuveitu Húsavíkur ohf. fór yfir rekstur félagsins á starfsárinu 2019.

2.Aðalfundur OH 2020 - Ársreikningur 2019

Málsnúmer 202004092Vakta málsnúmer

Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir starfsárið 2019 lagðir fram til samþykktar ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins.
Endurskoðandi Orkuveitu Húsavíkur fór yfir ársreikning félagsins vegna rekstrarársins 2019. Ársreikningurinn er samþykktur af hluthafa og undirritaður af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins.

3.Aðalfundur OH 2020 - Ráðstöfun hagnaðar

Málsnúmer 202004093Vakta málsnúmer

Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu 2019.
Tillaga stjórnar OH um ráðstöfun hagnaðar er að ekki verði greiddur út arður til eiganda félagsins vegna rekstrarársins 2019, en sú tillaga er til samræmis við fyrri ákvörðun eiganda. Tillagan var samþykkt og verður hagnaður ársins færður til hækkunar á eigin fé félagsins.

4.Aðalfundur OH 2020 - Laun stjórnarmanna OH

Málsnúmer 202004094Vakta málsnúmer

Ákvörðun skal tekin um laun stjórnarmanna fyrir störf þeirra í þágu félagsins.
Tillaga liggur fyrir um að greiðslur til stjórnarmanna verði til samræmis við greiðslur fyrir nefndarsetu hjá Norðurþingi og er sú tillaga samþykkt.

5.Aðalfundur OH 2020 - Kjör endurskoðanda

Málsnúmer 202004095Vakta málsnúmer

Kjör endurskoðanda fyrir næsta starfsár félagsins.
Tillaga liggur fyrir um að Deloitte verði áfram endurskoðandi félagsins og er sú tillaga samþykkt.

6.Aðalfundur OH 2020 - Kjör stjórnar

Málsnúmer 202004096Vakta málsnúmer

Kjör stjórnar fyrir næsta starfsár félagsins.
Tillaga hluthafa er að stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. sitji óbreytt.
Aðalmenn: Sigurgeir Höskuldsson, Bergur Elías Ágústsson, Kolbrún Ada Gunnarsdóttir.
Varamenn: Guðmundur Halldór Halldórsson, Hafrún Olgeirsdóttir, Birna Ásgeirsdóttir.
Tillagan er samþykkt.

7.Aðalfundur OH 2020 - Önnur mál

Málsnúmer 202004097Vakta málsnúmer

Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Engin mál borin upp undir þessum fundarlið.

Fundi slitið - kl. 14:45.