Orkuveita Húsavíkur ohf
Dagskrá
1.Aðalfundur OH 2025 - Starfsemi OH á árinu 2024
Málsnúmer 202504064Vakta málsnúmer
Staða og starfsemi félagsins á liðnu rekstrarári skýrð fyrir hluthafa félagsins.
Formaður stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf. fór yfir starfsemi félagsins á liðnu rekstrarári og skýrði frá því helsta sem markað hefur rekstur OH.
2.Ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf. fyrir árið 2024
Málsnúmer 202504065Vakta málsnúmer
Undirritaður ársreikningur Orkuveitu Húsavíkur ohf. vegna rekstrarársins 2024 lagður fram til staðfestingar ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins.
Stjórn þakkar Níels Guðmundssyni endurskoðanda fyrir yfirferð reikninga.
Ársreikningur staðfestur.
Ársreikningur staðfestur.
3.Aðalfundur OH 2025 - Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðartaps á reikningsárinu
Málsnúmer 202504066Vakta málsnúmer
Tillaga borin upp til samþykktar um hvernig hagnaði/tapi félagsins á reikningsárinu skuli ráðstafað.
Fyrir liggur tillaga frá eiganda félagsins um að greiddur verði út arður af rekstrar- og söluhagnaði eigna undanfarin ár, að undanskildum hagnaði af rekstri vatns- og fráveitu og að arðgreiðsla nemi kr. 70.000.000.
Tillagan er samþykkt.
Tillagan er samþykkt.
4.Aðalfundur OH 2025 - Kjör stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ohf
Málsnúmer 202504061Vakta málsnúmer
Tillaga hluthafa að stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf. fyrir komandi starfsár félagsins borin upp til samþykktar.
Tillaga hluthafa er að stjórn Orkuveitu Húsavíkur ohf.
Aðalmenn: Sigurgeir Höskuldsson (D), Bylgja Steingrímsdóttir (B), Valdimar Halldórsson (V)
Varamenn: Hafrún Olgeirsdóttir (D), Eysteinn Heiðar Kristjánsson (B) Ingibjörg Benediktsdóttir (V)
Tillagan er samþykkt.
Aðalmenn: Sigurgeir Höskuldsson (D), Bylgja Steingrímsdóttir (B), Valdimar Halldórsson (V)
Varamenn: Hafrún Olgeirsdóttir (D), Eysteinn Heiðar Kristjánsson (B) Ingibjörg Benediktsdóttir (V)
Tillagan er samþykkt.
5.Aðalfundur OH 2025 - Kjör endurskoðanda Orkuveitu Húsavíkur ohf
Málsnúmer 202504060Vakta málsnúmer
Tillaga um endurskoðanda Orkuveitu Húsavíkur ohf. á komandi rekstrarári borin upp til samþykktar.
Tillaga liggur fyrir um að ENOR ehf. verði áfram endurskoðandi félagsins.
Tillagan er samþykkt.
Tillagan er samþykkt.
6.Aðalfundur OH 2025 - Ákvörðun um laun stjórnarmanna OH
Málsnúmer 202504059Vakta málsnúmer
Ákvörðun skal tekin um laun stjórnarmanna fyrir störf þeirra í þágu félagsins
Tillaga liggur fyrir um að greiðslur til stjórnarmanna verði til samræmis við greiðslur fyrir nefndarsetu hjá Norðurþingi.
Tillagan samþykkt.
Tillagan samþykkt.
7.Aðalfundur OH 2025 - Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál
Málsnúmer 202504058Vakta málsnúmer
Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Engin mál borin upp undir þessum fundarlið.
Stjórnarformaður færði starfsfólki og stjórnarfólki þakkir fyrir vel unnin störf á árinu.
Aðrir fundarmenn tóku undir þakkirnar.
Stjórnarformaður færði starfsfólki og stjórnarfólki þakkir fyrir vel unnin störf á árinu.
Aðrir fundarmenn tóku undir þakkirnar.
Fundi slitið - kl. 09:30.
Níels Guðmundsson endurskoðandi sat fundinn og fór yfir ársreikning félagsins.
Auk þess sátu fundinn Bergþór Bjarnason fjármálastjóri Norðurþings og Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri.