Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings
Dagskrá
1.Erindi vegna framkvæmda við Þvergarð 2026-2028
Málsnúmer 202609098Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja upplýsingar frá Siglingasviði vegagerðar vegna útboðs vegagerðarinnar á framkvæmdum sem farið verður í á árinu 2027.
Stjórn Hafnasjóðs þakkar fyrir greinargóð gögn vegna framkvæmdanna og felur hafnastjóra að setja hlut hafnasjóðs Norðurþings í verkefninu á fjárfestingaáætlun næsta árs.
2.Farþegafjöldi og komur skemmtiferðaskipa 2026
Málsnúmer 202607031Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur kynning á fyrirhuguðu átaki til að fjölga aftur þeim skemmtiferðaskipum sem velja hafnir Norðurþings sem viðkomustað.
Örlygur Hnefill Örlygsson sat fundinn undir þessum lið.

Stjórn Hafnasjóðs samþykkir að gera átak í markaðssetningu hafna Norðurþings líkt og gert var fyrir tveimur árum. Stjórn felur hafnastjóra að vinna að málinu í samstarfi við Örlyg Hnefil.
3.Ósk um stöðuleyfi fyrir gám á lóð Sveinunga hf, Raufarhöfn
Málsnúmer 202609054Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggur ósk um stöðuleyfi vegna gáms á hafnarsvæðinu á Raufarhöfn samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Stjórn Hafnasjóðs samþykkir að veita stöðuleyfi til eins árs vegna gámsins.
4.Ýmis mál vegna rekstrar og fjárfestingar
Málsnúmer 202309051Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs liggja ýmis mál frá rekstrarstjóra hafna.
Rekstrarstjóri hafna óskar eftir að koma eftirfarandi á framfæri undir þessum dagskrárlið.
Mat á stöðu rekstrarins.
Undirritaður hefur gegnt starfi rekstrarstjóra hafna Norðurþings í rúm tvö ár. Á þeim tíma hefur reksturinn tekið miklum breytingum vegna ytri þróunar og aðstæðna. Tekjufall hefur verið verulegt, bæði vegna samdráttar í starfsemi PCC á Bakka og mikillar fækkunar skemmtiferðaskipa frá fyrra ári. Þrátt fyrir þessar áskoranir hefur starfið verið gefandi og starfsfólk hafnanna unnið afar gott starf við krefjandi aðstæður.
Það er mat undirritaðs að miðað við núverandi umsvif sé ekki forsvaranlegt að halda úti sérstöku starfi rekstrarstjóra hafna. Með hagsmuni hafnanna og sveitarfélagsins að leiðarljósi hef ég því sagt starfinu lausu. Þetta er ekki mat á framtíðarþörf hafnanna til lengri tíma. Þegar umsvif aukast á ný er eðlilegt að hafnastjórn endurmeti stjórnunarþörfina.
Mönnun og verkefni.
Nú eru tvö stöðugildi við höfnina á Húsavík og 0,25 stöðugildi á Kópaskeri. Jafnframt er unnið að því að tryggja 0,6 stöðugildi á Raufarhöfn. Miðað við stöðuna í dag og þá þekkingu sem starfsfólkið býr yfir tel ég að unnt sé að sinna þeim verkefnum sem fyrir liggja af fagmennsku og öryggi.
Við höfum á að skipa öflugu fólki með þá reynslu, þekkingu og ábyrgðartilfinningu sem þarf á erfiðum tímum. Verkefnin eru vel skipulögð og öryggismál ávallt í forgangi. Þá er mikilvægt að halda til haga að hægt er að kalla til reynda starfsmenn þegar tímabundið álag eykst, til dæmis við komu stærri skipa eða vegna afleysinga.
Þegar undirritaður lætur af störfum hefur föstum stöðugildum við hafnir Norðurþings fækkað um 49%. Sú niðurstaða er sársaukafull en, að mati undirritaðs, nauðsynleg miðað við núverandi rekstrarskilyrði. Ég er jafnframt sannfærður um að samdrátturinn verði tímabundinn.
Lokaorð
Ég og fjölskylda mín höfum búið í Norðurþingi í rúm tuttugu ár. Í átta ár naut ég þess heiðurs að starfa sem sveitarstjóri og hafnarstjóri Norðurþings. Á þeim tíma tókust sveitarfélagið og samfélagið á við sameiningu sveitarfélaga, fjármálakreppu, skipulagsbreytingar og oft þungan rekstur. Ekki var alltaf unnt að mæta öllum óskum um þjónustu eða fjárfestingar.
Megináherslan var þó á atvinnuuppbyggingu og margir lögðu þar hönd á plóg. Sú uppbygging skilaði miklu, þótt niðurstaðan hafi ekki að öllu leyti orðið eins og vonir stóðu til. Samfélagið efldist og íbúum fjölgaði.
Nú stöndum við á ný frammi fyrir erfiðum áskorunum, á tímum stríðs, alþjóðlegrar ólgu og markaðsóvissu. Ég hef trú á því að við stöndum þessar aðstæður af okkur sem samfélag. Til þess þurfa allir að axla ábyrgð og taka sanngjarnan þátt í þeim byrðum sem erfiðir tímar leggja á okkur.
Framtíðin byggist á því að nýta af ábyrgð þær auðlindir sem Þingeyjarsýsla býr yfir: orkuna, náttúruna, mannauðinn og þekkinguna. Markmiðið er skýrt, öflugt, lifandi og gjöfult samfélag.
Virðingarfyllst,
Bergur Elías Ágústsson

5.Boðun Hafnasambandsþings 22.-23.október 2026
Málsnúmer 202609117Vakta málsnúmer
Hafnasambands Íslands boðar stjórn Hafnasambandsins til 45. hafnasambandsþings sem haldið verður í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, dagana 22. og 23. október 2026. Hafnir Norðurþings eru í VI tekjuflokki og eiga því rétt á 5 fulltrúum á Hafnaþingið. Þess er óskað að sveitarstjórnir/hafnarstjórnir tilkynni um kjör fulltrúa á hafnasambandsþing eigi síðar en 15. október nk.
Stjórn Hafnasjóðs mun skipa fulltrúa á þingið á næsta fundi sínum.
6.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 202601072Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs Norðurþings liggur 485. fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn fór fram þann 7. september 2026.
Lagt fram til kynningar.
7.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 202601072Vakta málsnúmer
Fyrir stjórn Hafnasjóðs Norðurþings liggur 484. fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn fór fram þann 19. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 16:44.