Deildarstjóri - Vík íbúðarkjarni
Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir að ráða deildarstjóra í Vík íbúðakjarna. Um er að ræða stöðu í 80- 100% hlutfalli eftir samkomulagi. Starfið er að mestu dagvinna en þó einhverjar vaktir um kvöld eða helgar.
Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi heimilisins og tekur þátt í faglegu starfi með yfirmanni og stjórnendateymi. Deildarstjóri hefur umsjón með framkvæmd þjónustu við íbúa og vinnur með þeim á grundvelli áætlana. Starfið felur í sér viðtæk verkefni sem tryggja að íbúar fái viðeigandi, faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu sem stuðlar að bættum lífsgæðum og samfélagsþátttöku þeirra. Deildarstjóri er staðgengill forstöðumanns og aðstoðar því við mannaforráð, þar á meðal gerð vaktaplana.
Helstu verkefni :
- Umsjón með framkvæmd þjónustu og faglegri stefnu í samráði við forstöðumann.
- Veitir faglegan stuðning við teymisstjóra og starfsfólk.
- Skipuleggur dagleg verkefni, vaktir og þjálfun starfsfólks í samráði við forstöðumann.
- Heldur utan um og framfylgir fræðsluáætlunum starfsfólks í samstarfi við forstöðumann.
- Umsjón með handbókum og verklýsingum starfsstöðvar.
- Heldur utan um skráningar atvika, tölfræði og greiningu gagna.
- Greinir þarfir og gerir úrbætur á faglegu verklagi í samræmi við lög og reglugerðir sem um þjónustuna gilda.
- Leiðbeinir íbúum við athafnir daglegs lífs og meðferð fjármuna. Veitir íbúum einstaklingsmiðaðan stuðning í daglegu lífi.
- Tryggir viðeigandi þjónustu og íhlutun hvað varðar heilsufar íbúa. Fylgist með líkamlegu og andlegu heilsufari íbúa, aðstoðar þau við að leita sér heilbrigðisþjónustu, kaup á nauðsynlegum lyfjum og stoðtækjum, eftirfylgni og skráningu.
- Tryggir virk samskipti við íbúa, samstarfsfólk, aðra fagaðila, heilbrigðisstarfsfólk, vinnu-og virkniúrræði og aðstandendur íbúa.
Menntunar og hæfniskröfur :
- Menntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi/iðjuþjálfi, háskólapróf á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda sem nýtist í starfi, eða önnur menntun/reynsla sem nýtist í starfi.
- Reynsla í starfi með fötluðu fólki skilyrði.
- Deildarstjóri þarf að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði í starfi.
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og réttindum þeirra.
- Þekking á lögum um þjónustu við fatlað fólk og leiðandi hugmyndafræði þ.e. sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn æskileg.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
- Viðkomandi þarf að vera orðinn 18.ára.
- Hreint sakavottorð.
- Ökuréttindi æskileg.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Laun eru skv. kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Við hvetjum fólk til að sækja um óháð kyni. Sótt er um hér í gegnum 50skills
Umsóknarfrestur er til 10.05.2026
Frekari upplýsingar veitir Dóra Hrund Gunnarsdóttir: dorahrund@nordurthing.is