Kennarastöður við Öxarfjarðarskóla lausar til umsóknar
Öxarfjarðarskóli er fámennur, samrekinn leik- og grunnskóli með tæplega 60 nemendur, þar af 40 grunnskólanemendur. Í skólanum sem er staðsettur í Lundi í Öxarfirði fer fram metnaðarfullt skólastarf í teymum og starfað eftir uppeldisstefnunni Jákvæðum aga. Verið er að innleiða leiðsagnarnám/mat í samstarfi við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri.
Umsjónarkennarar óskast til starfa í teymum á yngra og eldra stigi í samkennslu árganga. Leitað er sérstaklega eftir kennara með áherslu á íslensku- og dönskukennslu á mið- og unglingastigi. Þá óskast smíðakennari til starfa sem og íþrótta- og sundkennari.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
- Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu
- Áhugi á að starfa með börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hafa á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum nemenda
- Ábyrgð og stundvísi
Frekari upplýsingar veitir Hrund Ásgeirsdóttir, skólastjóri: hrund@oxarfjardarskoli.is
Sækja um starfið hér - 50skills
Umsóknarfrestur: 29.04.2026