Fara í efni

Kveðja frá Norðurþingi

Sveitarstjórn og starfsfólk Norðurþings vottar fjölskyldum og ástvinum þeirra þriggja skipverja Jökuls ÞH sem fórust sína innilegustu samúð. Hugur okkar allra er hjá áhöfninni, fjölskyldum hennar, ástvinum, starfsfólki og eigendum GPG Seafood ehf. í kjölfar hins hörmulega sjóslyss sem varð í gær.

Við færum viðbragðsaðilum, áhöfnum nærliggjandi skipa og öllu því hugrakka fólki sem kom að björgunaraðgerðum innilegar þakkir fyrir það þrekvirki sem unnið var við erfiðar aðstæður. Það verður aldrei fullþakkað.

Vakin er athygli íbúa á að Húsavíkurkirkja verður opin fyrir öll í dag þar sem séra Magnús Gunnarsson og séra Sólveig Halla Kristjánsdóttir verða á staðnum ásamt fulltrúum Rauða Krossins sem veita áfallahjálp.

Bænastund verður haldin kl. 17:00.