Fara í efni

Laus kennarastaða við Öxarfjarðarskóla

Vilt þú slá til og koma að kenna með okkur í Öxarfjarðarskóla næsta vetur?

Öxarfjarðarskóli er fámennur samrekinn leik- og grunnskóli með tæplega 60 nemendur skólaárið 2026-27, þar af um 40 nemendur í grunnskóladeild. Um er að ræða í samkennslu árganga í þremur deildum; yngri deild (1.-4.b), miðdeild (5.-7.b) og unglingadeild (8. - 10.b). Skólinn er staðsettur í fallegu og gróðursælu umhverfi við Öxarfjörð þar sem starfar góður og samhentur hópur fólks eftir gildum skólans sem eru vinátta, virðing, jákvæðni og metnaður. Leitað er eftir umsjónarkennara í teymi á mið-og unglingastig í 100% stöðu með sérstaka áherslu á íslensku og dönsku.

Sótt er um HÉR í gegnum 50skill þar sem einnig má finna frekari upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur , verkefni og ábyrgð.

Með umsókn skal senda afrit af prófskírteinum, ferilskrá og meðmæli.
Frekari upplýsingar veitir Hrund Ásgeirsdóttir, skólastjóri á hrund@oxarfjardarskoli.is

Umsóknarfrestur er til 30.júní 2026