Laust starf fjármálastjóra Norðurþings
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi til að taka þátt í spennandi og krefjandi verkefnum hjá sveitarfélaginu.
Fjármálastjóri hefur yfirumsjón með áætlanagerð og uppgjöri sveitarfélagsins og samhæfingu verkefna á sviði fjármála. Næsti yfirmaður er sveitarstjóri og er fjármálastjóri staðgengill hans.
Starfssvið
- Ábyrgð á daglegri fjármálastjórn sveitarfélagsins
- Undirbúningur, gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana
- Yfirumsjón með fjárreiðum, innkaupum og reikningshaldi
- Yfirumsjón með framlagningu árshlutareikninga og ársreikninga
- Samstarf og samskipti við endurskoðendur
- Greiningarvinna og miðlun upplýsinga til kjörinna fulltrúa og stjórnenda
- Samningagerð og samskipti við aðila innan og utan sveitarfélagsins
- Ýmis umbótaverkefni sem snúa m.a. að innleiðingu nýrra kerfa og gerð verkferla
- Ábyrgð á launavinnslu og umsjón og eftirliti með kjarasamningum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði fjármála, viðskipta, endurskoðunar eða reksturs. Framhaldsmenntun æskileg
- Reynsla af reikningshaldi, endurskoðun, áætlanagerð og fjármálastjórnun
- Stjórnunarreynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
- Afar góð greiningarhæfni og færni í notkun upplýsingatækni
- Reynsla af samningagerð kostur
- Góð leiðtoga-, samskipta- og stjórnunarhæfni
- Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri í starfi
- Hæfni til að miðla þekkingu og upplýsingum á íslensku og ensku
Sótt er um starfið hér á www.mognum.is
Umsóknarfrestur er til og með 03.08. 2026
Nánari upplýsingar veita Sigríður Ólafsdóttir; sigga@mognum.is og Telma Eiðsdóttir; telma@mognum.is
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Norðurþing er sveitarfélaga á norðausturlandi sem varð til árið 2006 við sameiningu Húsavíkurbæjar, Öxarfjarðarhrepps, Raufarhafnarhrepps og Kelduneshrepps. Norðurþing er víðfemt sveitarfélaga og þéttbýliskjarnar eru þrír í sveitarfélaginu; Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn. Auk þess eru sveitirnar Reykjahverfi, Kelduhverfi, Núpasveit og Öxarfjörður. Íbúar eru um 3.150 talsins.