Fara í efni

Laust starf ræstitæknis við Öxarfjarðarskóla

Norðurþing auglýsir lausa stöðu ræstitæknis við Öxarfjarðarskóla.

Um er að ræða ræstingar í skólahúsnæði Öxarfjarðarskóla í Lundi í leik-og grunnskóladeildum.
Ræsting á skólanum á dagvinnutíma frá kl. 13:00-17:00

Laun eru skv. kjarasamningi SGS og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknir ásamt fylgigögnum sendast einnig á Hrund skólastjóra, hrund@oxarfjardarskoli.is

Sótt er um HÉR í gegnum 50skills þar sem einnig má finna frekari upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur.