Fara í efni

Leikskólakennarar við Öxarfjarðarskóla óskast

Lundarkot er leikskóladeild innan Öxarfjarðarskóla sem staðsettur er í Lundi við Öxarfjörð. Öxarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli með tæplega 60 nemendur skólaárið 2026-2027, þar af tæplega 20 börn í leikskóladeild. Leikskóladeildin er innanhúss í grunnskólanum og starfar í anda jákvæðs aga og uppeldisstefnu Johns Dewey. Samstarf er milli leik- og grunnskóla.

Leitað er eftir leikskólakennurum í 100% stöður sem þurfa að geta hafið störf um miðjan ágúst.

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara.
  • Góð íslenskukunnátta
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum ungra barna
  • Áhugi á að starfa með börnum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Stundvísi og reglusemi

Frekari upplýsingar veitir Hrund Ásgeirsdóttir, skólastjóri hrund@oxarfjardarskoli.is

Sækja um starfið hér - 50skills
Umsóknarfrestur: 28.04.2026