Fara í efni

Norðurþing heldur gjaldskráhækkunum innan 2,5%

Á 529. fundi sínum tók byggðarráð Norðurþings fyrir gjaldskrár næsta árs og var þar samþykkt að hækkanir almennra gjaldskráa í rekstri A-hluta sveitarfélagsins verði ekki umfram 2,5% á árinu 2027, sem er í samræmi við gildandi verðbólgumarkmið Seðlabankans. Ákvörðunin var tekin með það að leiðarljósi að gildandi kjarasamningar á vinnumarkaði haldi.

Þessi ákvörðun er í samræmi við og í kjölfar þess að Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti í lok september ályktun um að sveitarfélögin í landinu lýsi yfir vilja til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027.

Norðurþing vill með þessari ákvörðun leggja sitt af mörkum til að ná sameiginlegum markmiðum um lægri verðbólgu og vexti í landinu sem mun bæta hag heimila, fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkis.

Það er ljóst að bæði ríki, sveitarfélög og aðrir hagaðilar þurfa að leggjast saman á árarnar svo að markmið um lækkun verðbólgu og vaxta náist.