Fara í efni

Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu

Félagsleg heimaþjónusta

Norðurþing leitar að starfsmanni í félagslega heimaþjónustu í tímavinnu í Kelduhverfi, Öxarfirði og á Kópaskeri. Starfshlutfall er í kringum 30%, en getur þó verið breytilegt. Þjónustunotendur eru einstaklingar með langvarandi stuðningsþarfir vegna öldrunar, fötlunar eða annarra langvarandi veikinda. Starfið felur í sér aðstoð með daglegar athafnir þjónustuþega svo sem þrif, hreyfingu, innkaup og aðrar persónulegar þarfir hvers og eins.

Vinnutími er umsemjanlegur í samstarfi við næsta yfirmann.
Óskað er eftir starfsmanni sem getur hafið störf sem fyrst.


Umsóknarfrestur til og með 15.maí n.k.
Til að sjá frekari upplýsingar eða sækja um smellið HÉR

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sunna Mjöll Bjarnadóttir á netfangið sunna@nordurthing.is