Fara í efni

Þjónustustefna Norðurþings

Þjónustustefna sveitarfélagsins er sett á grunni 130. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í júní 2021 var lögfest ákvæði í fyrrnefndum sveitarstjórnarlögum að frumkvæði Byggðastofnunar sem kveður á um að sveitarstjórn skuli móta stefnu sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðarkjörnum. Við gerð og mótun stefnunnar skal sveitarstjórn hafa samráð við íbúa sveitarfélagsins.

Á 529. fundi byggðarráðs þann 6. október 2026 var eftirfarandi bókað:

Byggðarráð heldur áfram vinnu sinni við þjónustustefnu Norðurþings samhliða fjárhagsáætlunargerð. Ráðið vísar þjónustustefnu einnig til umfjöllunar í skipulags- og framkvæmdaráði og fjölskylduráði. Byggðarráð stefnir að rafrænu samráði við íbúa við gerð stefnunnar.

Hér liggur núverandi þjónustustefna fyrir íbúa sveitarfélagsins til samráðs. Ef íbúar hafa athugasemdir eða ábendingar er hægt að skila þeim til og með 25. nóvember nk.

Hér má skila inn athugasemdum eða ábendingum