Fara í efni

Umsjón með félagsstarfi aldraðra - Laust starf til umsóknar

Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir öflugum og skapandi starfsmanni í félags- og tómstundastarf aldraðra og húsumsjón í 100% starfshlutfalli með vinnutíma frá 08:00-16:00 á virkum dögum. Starfsstöð er í grunnskólunum á Kópaskeri og Raufarhöfn.

Starfslýsing
Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir öflugum og skapandi starfsmanni í félags- og tómstundastarf aldraðra og húsumsjón. Um er að ræða 100% starf með vinnutíma frá 08:00-16:00. Starfsstöð er í grunnskólunum á Kópaskeri og Raufarhöfn.
Starfsmaðurinn vinnur að öflugu félags- og tómstundastarfi og hefur umsjón með skólahúsnæði á Kópaskeri og Raufarhöfn. Lögbundið félags- og tómstundastarf skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, fer fram vikulega á hvorum stað fyrir sig.
Markmið lögbundins félags- og tómstundastarfs skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 er að tryggja öldruðum aðgang að félags- og tómstundastarfi við þeirra hæfi með áherslu á fræðslu og námskeiðahald um réttindi aldraðra og aðlögun að breyttum aðstæðum sem fylgja því að hætta þátttöku á vinnumarkaði.

Óskað er eftir metnaðarfullum starfsmanni sem vill stuðla að faglegu starfi með gæði og kærleika að leiðarljósi. Starfið er opið, skemmtilegt og býður upp á að innleiða nýjungar.

  • Helstu verkefni umsjónarmanns:
  • Félags- og tómstundastarf aldraðra og umsjón með daglegri starfsemi.
  • Vikulegir samráðsfundir með félagsþjónustu.
  • Skipuleggja og halda utan um námskeið og viðburði í tengslum við félags- og tómstundastarfið.
  • Samskipti og samstarf.
  • Umsjón með skólahúsnæði á Kópaskeri og Raufarhöfn

  • Menntun og hæfniskröfur:
  • Gerð er krafa um félagsliðanám, stúdentspróf eða sambærilega þekkingu/reynslu á starfssviðinu.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, virðing og samvinna.
  • Áhugi á félags- og tómstundastarfi og vinnu með fólki.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsins.
  • Kunnátta í handverki eða föndri er kostur.
  • Góð íslensku kunnátta.
  • Bílpróf og bíll til umráða.

Starfshlutfall er 100%. Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Lára Björg Friðriksdóttir, Lara@nordurthing.is

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí 2026

Umsóknarfrestur er til 8. apríl 2026
Hér má sækja um