Útboð - snjómokstur á Raufarhöfn
27.11.2026
Tilkynningar
Sveitarfélagið Norðurþing óskar eftir tilboðum í almennan snjómokstur á Raufarhöfn 2027-2029. Um er að ræða mokstur vega/gatna á Raufarhöfn samkvæmt verklýsingu.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með fimmtudeginum 30. Nóvember 2026. Óska skal eftir gögnum með því að senda beiðni um slíkt á netfangið rab@verkis.is. Í þeirri beiðni skal koma fram nafn þess fyrirtækis sem óskar eftir gögnunum og hver forráðamaður þess er.
Tilboðum skal skila rafrænt á netfangið rab@verkis.is ekki síðar en mánudaginn 15. desember kl. 10.00.