Fara í efni

Afreks- og viðurkenningarsjóður Norðurþings fyrir árið 2022

Auglýst var eftir umsóknum í Afreks- og viðurkenningarsjóð fyrr á árinu.
Fjölskylduráð tók fyrir og fjallaði um umsóknir á 142. fundi þann 21. febrúar sl. 

Fjölskylduráð Norðurþings styrkir eftirfarandi einstaklinga vegna umsóknar í afreks- og viðurkenningarsjóð:

Aron Bjarki Kristjánsson, blak fær úthlutað 45.000 kr.
Heiðdís Edda Lúðvíksdóttir, blak fær úthlutað 90.000 kr.
Hreinn Kári Ólafsson, blak fær úthlutað 45.000 kr.
Hörður Mar Jónsson, blak fær úthlutað 45.000 kr.
Kristey Marín Hallsdóttir, blak fær úthlutað 90.000 kr.
Sigrún Anna Bjarnadóttir, blak fær úthlutað 45.000 kr.
Sigrún Marta Jónsdóttir, blak fær úthlutað 90.000 kr.
Sigurður Helgi Brynjúlfsson, blak fær úthlutað 45.000 kr.
Alekss Kotlevs, knattspyrna fær úthlutað 90.000 kr.
Valur Snær Guðmundsson, golf fær úthlutað 75.000 kr.

Fjölskylduráð óskar styrkhöfum til hamingju með frábæran árangur í sínum íþróttagreinum á árinu 2022. Ráðið telur ástæðu til að fagna fjölda ungs afreksfólks í sveitarfélaginu og hvetur þau til frekari dáða.