Fara í efni

Áhrif rafmagnsleysis á þjónustu stofnana Norðurþings á Húsavík.

Eins og margir hafa orðið varir við þá var ákveðið að engin kennsla yrði í Borgarhólsskóla í dag vegna þess hve óstöðugt rafmagnið er.

Þetta hefur einnig áhrif á leikskólann Grænuvelli en þangað eru nemendur velkomnir en þó er mælst til þess að foreldrar hafi börn sín heima ef mögulegt er, þar sem ekki er hægt að elda mat á staðnum og því eingöngu boðið uppá spónamat í dag.

Ekki verður opið í Frístund.

Opnun íþóttamannvirkja verður ákeðin eftir hádegi í dag en vonast er til að rafmagn verði orðið stöðugt þegar líður á daginn og ekki verði röskun á opnun íþróttamannvirkja.
--- UPPFÆRT --- Opið eins og vanalega


Stjórnsýsluhúsið á Húsavík er opið milli 9 – 12:15 og 12:45 – 16 í dag.

Aðrar stofnanir sveitarfélagsins á Húsavík eru opnar samkvæmt venju.