Fara í efni

Veiðidagar í Litluárvötn - 10 stangir til umsóknar.

Líkt og í fyrra þá er aðsókn í Litluárvötn minni en reiknað var með vegna COVID-19 og því er eigendum heimilt að nýta 10% af veiðidögum ársins án endurgjalds.
Norðurþing hefur til ráðstöfunar 10 stangir til veiða í ánni í sumar og er íbúum Norðurþings boðið að senda inn ósk um veiðidaga í samræmi við bókun byggðarráðs frá 359. fundi þess, 15. apríl. 
Veiðifyrirkomulagið er veiða-sleppa og einungis er um fluguveiði að ræða.
Umsóknir sendist á netfangið nordurthing@nordurthing.is með efnisheitinu „Ósk um veiðidaga“ og er veiðin endurgjaldslaus fyrir umsækjendur.
Umsóknarfrestur er til miðnættis mánuddaginn 3. maí nk. og verður dregið úr innsendum umsóknum á fundi byggðarráðs fimmtudaginn 6. maí verði þær fleiri en þær stangir sem eru í boði.
Umsækjendur fá frekari upplýsingar um nýtingu veiðidaganna að loknum umsóknarfresti en hægt er að sjá lausa veiðidaga á www.veiditorg.is