Fara í efni

Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir starfsmanni í heimaþjónustu

Félagsþjónusta Norðurþings óskar eftir starfsmanni í heimaþjónustu á austursvæði Norðurþings.

Markmið starfsins er að aðstoða og valdefla einstaklinga með sérstakar stuðningsþarfir til virkni og sjálfstæðrar búsetu.

Nánar um starfið:
Að veita stuðning og umönnun þar sem þarfir einstaklinga eru hafðar að leiðarljósi. Starfsmaður vinnur samkvæmt einstaklingsbundinni þjónustuáætlun. Þjónustunotendur eru einstaklingar með sérstakar stuðningsþarfir vegna öldrunar, fötlunar eða annarra langvarandi veikinda.
Starfshlutfall er u.þ.b. 20%
Vinnutími er sveigjanlegur og samkvæmt samningi við yfirmann. 

Hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi og áhugi á að afla sér aukinnar þekkingar með námi eða þáttöku á námskeiðum og starfsmenntun. Sjúkraliða- eða félagsliðamenntun er kostur. Jákvæðni, þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði. 

Umsóknarfrestur er til 24. febrúar 2023

Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Hreinsdóttir í síma 464-6100 eða í gegnum netfangið fanney@nordurthing.is