Fara í efni

Frístundastyrkir í Norðurþingi

Frístundastyrkir hafa verið greiddir til ungmenna í Norðurþingi frá árinu 2018.
Fyrsta árið var upphæðin 6000 kr. en var 17.500 kr. á árinu sem var að líða.
Búið er að ákveða að upphæð fyrir árið 2023 verði 20.000 kr á hvert ungmenni á aldrinum 2-18 ára. Einnig er vert að nefna að nú geta ungmenni á aldrinum 16-18 ára nýtt styrkinn til kaupa á kortum í líkamsræktarstöðvar.

Markmið frístundastyrkja er að öll börn og unglingar í Norðurþingi geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Árið 2022 lækkuðu styrkingir æfingagjöld ungmenna um tæplega 5,8 milljónir. Hlutfall ungmenna sem nýta sér styrkinn hefur hækkað ár frá ári og á árinu 2022 nýttu 364 ungmenni sér styrkinn. 




Nýtingarhlutfall síðasta árs var um 65% sem er á svipuðu reki og gengur og gerist á landsvísu þó svo að uppsetning og útfærsla styrkja sé breytileg á milli sveitarfélaga. 

 

 

Hér má sjá nánari upplýsingar um frístundastyrki í Norðurþingi 
Hér má nálgast reglur um frístundastyrki.